Steiktur þorskur með tómötum, ólífum og kapers

 

Þorskur er einn allra besti matfiskur sem völ er á. Svo er hann líka svo hollur.  Þessa uppskrift fundum við á síðunni Fiskur í matinn en það er Norðanfiskur sem heldur henni úti.  Það er Leifur Kolbeinsson yfirmatreiðslumeistari á Marshall veitingahúsi sem er höfundur uppskriftarinnar. En það sem tilþarf í þennan rétt  er:

 

800 gr þorskur

1 laukur, afhýddur og grófsaxaður

3 hvítlauksgeirar

3 msk kapers

150 ml hvítvín (má nota vatn og safa úr ½ sítrónu.)

700 gr ókryddaðir tómatar í dós

80 gr. ólífur

1 knippi steinselja

Ólífuolía

Salt og pipar

Steikið laukinn í potti í nokkrar mínútur, bætið þá hvítlauknum, kapersinu, hvítvíninu, tómötum og ólífunum saman við og eldið í u.þ.b. 20 mín.
Smakkið til með salti og pipar og bætið söxuðu steinseljunni saman við. Steikið þorskinn í 3 mín. á hvorri hlið og berið fram. 

Ritstjórn janúar 18, 2019 09:10