Kristján Jóhannsson söng í fyrsta sinn opinberlega 8 ára gamall þegar hann kom fram með föður sínum, Jóhanni Konráðssyni í KEA byggingunni á Akureyri en þar hafði Jóhann komið fram reglulega í áratugi. Í þetta sinn tók Jóhann stubbinn sinn með og þar með var ekki aftur snúið. Kristján hefur unað sér best á sviði allar götur síðan og við Íslendingar höfum notið góðs af.
Hefur áður sungið þetta sama hlutverk
Söngferill Krisjáns er skrautlegur enda hefur hann sungið í mörgum frægustu óperuhúsum heims. Hann er nú fluttur heim og nýtur þess að syngja á Íslandi, bæði fyrir landa sína og erlenda gesti sem nú eru allmargir hér á landi. Kristján kemur líka fram á stórum sem smáum samkomum og segist sem betur fer hafa nóg að gera og vera mjög þakklátur forsjóninni fyrir að geta enn verið með eftir að vera búinn að syngja í allan þennan tíma.
Tosca dásamleg Ópera
Kristján er núna að fara að syngja í uppfæslu á óperunni Tosca eftir Puccini. „Í Tosca koma fram söngvarar á heimsmælikvarða og það er dásamlegt að geta enn tekið þátt í slíkri óperu,“ segir Kristján. „Ég er elstur í þessari uppfærslu og Bjarni Frímann Bjarnason hljómsveitastjóri er yngstur.“ Kristján syngur hlutverk Cavaradossi en hann hefur sungið þetta hlutverk yfir 400 sinnum í óperuhúsum um allan heim.
Valinn maður í hverju rúmi
Óperan Tosca er stórbrotið verk í þremur þáttum eftir meistara óperunnar Giacomo Puccini. „Tosca sjálf er í höndum stórkostlegrar, breskrar söngkonu, Claire Rutter sem hefur fengið gífurlegrar viðurkenningar fyrir frammistöðu sína. Leikstjórinn er Greg Eldridge og er nálgun hans mjög fagmannleg. Í þessari uppfærslu er valinn maður í hverju rúmi og við lofum skemmtun á heimsmælikvarða,“ segir Kristján alsæll með þessa nýju uppfærslu á óperunni Tosca sem verður frumsýnd 21. október næstkomandi.