Tengdar greinar

Þorskur í kókoskarrý

Þessi girnilega uppskrift fyrir 4, er fengin af uppskriftavefnum Fiskur í matinn, smella hér. Höfundur uppskriftarinnar er Oddur Smári Rafnsson. Það tekur 40-45 mínútur að búa réttinn til. Þorsflök eða þorskhnakkar gætu verið ákjósanlegt hráefni í réttinn þó það sé ekki tekið fram í uppskriftinni.

Innihald:
  • 800 g þorskur
  • 300 ml kókosrjómi
  • 1 tsk karrí
  • ½ teningur grænmetiskraftur
  • ½ laukur, sneiddur
  • ½ grænt epli
  • 2 gulrætur, rifnar
  • 1 rófa rifin (ekki of stór)
  • 5 kartöflur, sneiddar þunnt
  • 2 lúkur grænkál, saxað
  • 2 hvítlauksgeirar, saxaðir
  • 2 bollar rifinn ostur
  • Salt og pipar

Aðferð:

Skerið fiskinn í bita og setjið í eldfast form og saltið og piprið yfir. Setjið kókosrjómann, karrí, lauk og epli saman í pott og látið malla í ca. 7 mín. Maukið síðan saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél, smakkist til með salti og pipar. Skerið grænmetið og steikið á pönnu. Hellið grænmetinu út í sósuna og blandið saman, hellið yfir fiskinn og dreifið ostinum yfir. Eldið í ca. 18–20 mín í 180°C heitum ofni. Borið fram með hrísgrjónum og naan brauði.

Ritstjórn janúar 4, 2019 13:42