Gunnar Jónatansson og Rósa K. Benediktsdóttir sem annast tengsl við tannlæknastofuna Madenta í Búdapest eru að fara í skipulagða hópferð, svokallaða heilsuviku, þangað í þessum mánuði. Gunnar sagði í samtali við Lifðu núna að það væri orðið uppselt í ferðina, en þangað fara 15 manns. Hann segir koma til greina að skipuleggja aðra ferð í haust, en ákvörðun um það hefur ekki enn verið tekin. Lagt verður upp frá Íslandi 25.maí og ferðin tekur viku.
Auk þess að fara til tannlæknis, munu ferðalangarnir njóta lífsins í Búdapest. Það sem er í boði þar, er meðal annars að fara í tyrknesk böð, skoðunarferð um borgina, vínsmökkun og bátsferð að kvöldi dags á Dóná. Í heilsuvikunni verður líka mögulegt að fara til lýtalæknis, frá sjóntækjaþjónustu, nudd, snyrtingu og fleira. Ferðalangarnir munu að sjálfsögðu kynna sér aðstæður hjá Madenta og þjónustuna sem þar er í boði. Á vefsíðu Gunnars og Rósu eru upplýsingar um þjónustuna og verðið sem fólk greiðir fyrir hana. Hér eru nokkur dæmi af handahófi, en verðskrána í heild má sjá hér.
Tannhvíttun í efri og neðri góm um 48.000 krónur (350 evrur)
Tannkrónur frá um 36.000 – 52.000 krónur (260-380 evrur)
Tannplanti, tengi og hulsa alls 170.000 krónur (1440 evrur)
Gunnar segir að tannlæknaþjónustan hjá Madenta sé 50-70% ódýrari en hér. Lesið viðtal við Gunnar hér.