Svefntruflanir aukast með aldrinum

Algengast er að svefnþörf fullorðinna sé 7-8 klukkustundir á sólarhring og langir daglúrar draga úr góðum nætursvefni. Þetta kemur fram á vefnum Heilsuveru, en þar er fróðleg grein um svefntruflanir, sem geta verið af ýmsum toga hjá fólki.  Þar segir jafnframt að svefntruflanir aukist með aldrinum og séu algengar hjá konum á breytingaskeiði.  Tímabundið svefnleysi er þannig algengur kvilli með tilheyrandi dagsyfju og vanlíðan næsta dag. Síðan segir orðrétt á vefnum.

Ástæður svefntruflana geta verið ýmiskonar t.d. áhyggjur, álag, verkir, sjúkdómar,vímuefnaneysla eða aukaverkanir lyfja. Vaktavinna, óreglulegt eða breytt lífsmunstur getur líka truflað svefn. Svefntruflanir aukast með aldrinum og eru algengar meðal kvenna á breytingaskeiði. Til að leysa vandann er nauðsynlegt að ráðast að rótum hans og reyna að finna út hvað veldur svefnleysinu og ef hægt er, að ráða bót á því. Þeir sem þjást af þreytu, dagsyfju og hrjóta mikið ættu að láta kanna hvort um kæfisvefn er að ræða. Oft á tíðum er ástæðan einfaldlega óreglulegar svefnvenjur eða að fólk fer einfaldlega of seint að sofa.

Helstu einkenni svefntruflana eru að fólk á erfitt með að sofna á kvöldin, það er algengt að það vakni á nóttunni og  það á erfitt með að sofa frameftir. Þessu fylgir svo þreyta og dagsyfja. Bent er á það á vef Heilsuveru að ef svefntruflanir séu viðvarandi og almenn ráð dugi ekki til að bæta svefninn sé rétt að hafa samband við heimilislækni og leita ráða. Þá er bent á að hugræn atferlismeðferð sé árangursrík lausn við langvarandi svefnleysi. Þeir sem sæki sér hana nái að bæta svefninn verulega og það til lengri tíma. Það er einnig bent á að það sé hægt að fá meðferð við svefnleysi á netinu. Það sé ódýrara, gagnist öllum óháð búsetu og fólk geti stundað meðferðina hvar og hvenær sem er.

Oft er líka hægt að ráða bót á svefntruflunum með einföldum ráðum sem hver og einn getur sjálfur gripið til.

Stundum tekur fólk svefnlyf til að geta sofið. Á vefnum segir að svefnlyf í skamman tíma geti hjálpað, sérstaklega til að rjúfa vítahring svefnleysis, en brýnt er fyrir fólki að taka aldrei svefnlyf nema þau sem læknir hefur ávísað því.

 

Ritstjórn september 12, 2019 13:15