Verkefnisstjórn Evrópuverkefnisins BALL hefur skilað viðamikilli skýrslu um þriðja æviskeiðið. Lokaafurð verkefnisins er bókin Til móts við þróttmikið þriðja æviskeið, BALL-verkefnið: leiðarvísir og leiðbeiningar. Bókin er gefin út á rafrænu formi og hana er hægt að nálgast hér.
U3A á Íslandi átti hugmyndina að verkefninu en það var var styrkt af ESB, Erasmus+ og unnið í samvinnu við systursamtök U3A í Póllandi og á Spáni. Aldurshópurinn, sem einkum var hugað að, var kynslóðin sem nefnd er baby boomers á ensku en til hennar telst fólk sem nú er á aldrinum 50–70 ára. Í kynningu á bókinni segir: „Breytingar eiga sér nú stað á aldurssamsetningu Evrópuþjóða. Bætt heilsufar og aukið langlífi hafa ásamt minnkandi frjósemi þær afleiðingar að riðla smám saman jafnvæginu milli aldurshópa í þjóðfélaginu. Elstu kynslóðirnar fara stækkandi í hlutfalli við hinar yngri og af þeim sökum er því miður oft fjallað um þær sem vaxandi byrði á þjóðfélaginu. BALL verkefnið beinir augum að því að fremur beri að líta á þessar kynslóðir eldri borgara sem feng. Árin eftir miðjan aldur, þegar fólk nálgast starfslok og kemst á eftirlaunaaldur, eru stundum nefnd „hin gullnu fullorðinsár“ eða þriðja æviskeiðið.
Þessar kynslóðir eiga bæði auðvelt með og eru fúsar til að deila reynslu sinni og þekkingu með öðrum og stuðla þannig að framförum og auknum afköstum í þjóðfélaginu. Það skiptir öllu máli um félagslega ábyrgð og virka samfélagsþátttöku eldri borgara að þessi ár séu nýtt sem tími tækifæra. Í leiðarvísinum Til móts við þróttmikið þriðja æviskeiðið eru hugmyndir sem byggjast á umfangsmiklum rannsóknum, könnunum og þróunarvinnu sem fram fór í þátttökuríkjunum þremur – Íslandi, Póllandi og Spáni – og voru mótaðar með það í huga að þær gætu nýst í öllum Evrópulöndunum. Leiðbeiningunum sem beint er til allra þeirra aðila, opinberra eða einkarekinna, sem hafa þær skyldur eða telja sér hag í að bjóða ráðgjöf vegna undirbúnings þriðja æviskeiðsins.“