Nú er nornatíð

Nú spranga um götur draugar, sjóræningjar, nornir og annað illþýði. Að vísu ansi smávaxið í flestum tilfellum en engu að síður ekki verur sem við alla jafna tökum fagnandi en núna gleðjumst við. Sumir þessara norna halda á seiðpottum sínum og krefjast þess að fá eitthvað í hann svo nú er sannarlega nornatíð.

Auglýsing

Orðið nornatíð vísaði til stundarinnar milli þrjú og fjögur á nóttunni en þá þótti líklegast að eitthvað illt væri á sveimi. Hér á landi var nýársnóttin sérlega mögnuð og Jónsmessa að sumri. Þá lá sú trú á að alls konar yfirnáttúrulegar verur væru á sveimi og náttúran óvenjulega áhrifamikil. Erlendis er það Halloween eða allra sálnamessa sem kallar fram kyngikrafta. Sálir hinna dauðu rísa og taka að vafra um og ef einhverjir óvættir búa í nágrenni við þig er næsta víst að þeir sæti lagi og læsi í þig krumlunum. Sú hátíð hefur sótt í sig veðrið hér á landi á undanförnum árum og æ fleiri klæðast búningum, skreyta híbýli sín og halda út á göturnar til að bjóða fólki að velja grikk eða gott.

Allra sálna messa á rætur sínar langt aftur í heiðni en átti greiða leið, eins raunar margvísleg önnur hátíðahöld, inn í kaþólska trú. Upphaflega var til þess ætlast að menn nýttu þennan tíma til að minnast látinna ástvina, gera yfirbót fyrir syndir og varast hin illu öfl tilverunnar. Í þá daga trúði fólk á galdra og óttaðist að nornir og aðrir er stunduðu galdur fengju byr í seglin þessa nótt og gætu þess vegna átt greiðari leið að saklausu fólki. Fljótlega kom að því að fólk fór að klæða sig upp í búninga og hræða hvert annað og í Svíþjóð var Halloween ekki eingöngu dagur norna því þær sáust einnig á ferðinni rétt fyrir páska, þar töldu menn nefnilega að þær tækju sér til handargagns kústa sína og flygju af stað til samneytis við djöfulinn á skírdag. Sænskir krakkar klæða sig þess vegna upp sem páskanornir, setja upp trefla og bera rauðan farða í kinnarnar.

Álfatrú og galdratrú

Það er langt síðan galdratrú lagðist að mestu af en enn eru til manneskjur sem trúa að sumum sé gefin hæfni til að leggja álög á aðra og brugga seið svo magnaðann að hann dugi til að kalla fram margvísleg áhrif. Fólk af ýmsum þjóðernum gerir grín að Íslendingum fyrir trú þeirra á huldufólk en samkvæmt könnunum trúir einn af hverjum fjórum Bandaríkjamönnum á galdra. Hvort hlutfallið er svipað, hærra eða lægra meðal Evrópubúa er ekki vitað en í Bretlandi hefur Wiccan-trú sótt í sig veðrið á unda   nförnum árum og þónokkrir ástunda hana. Þau trúarbrögð eiga rætur í eldgömlum engilsaxneskum sið og ganga út trú á náttúruöflin og að hægt sé að beisla þau með margvíslegum ráðum. Gyðjur og goð koma þar einnnig við sögu. Talið er að um 13.000-14.000 Wiccan-nornir og seiðkarlar búi í Bretlandi og í Maine í Bandaríkjunum eru 4% íbúa Wiccan-trúar.

Á miðöldum trúði kristnir menn að nornir og seiðkarlar væru illskan uppmáluð, að fólkið hefði selt sál sína djöflinum og væri stórhættulegt öðrum. Oft var hér um að ræða karla og konur sem bjuggu yfir einhvers konar þekkingu umfram aðra, til að mynda á hvernig nýta mætti betur gæði landsins til að lifa af vond ár, á grasalækningum eða hvernig lesa mætti í umhverfið. Stundum var hér um að ræða hlédrægt fólk sem kaus að búa eitt, fólk sem var heppið og gekk vel meðan öðrum gekk illa eða manneskjur sem á einhvern hátt skáru sig úr. Galdrabrennur voru fár í Evrópu og hér á landi voru brenndir tuttugu karlmenn og ein kona.

Þessu var öfugt farið í Evrópu um það bil 100.000 manns voru drepin þar og í miklum meirihluta konur. Verstu galdraofsóknir Bandaríkjanna áttu sér hins vegar stað í Salem í Massachusetts í lok sautjándu aldar Þar voru fjórtán konur og fimm karlar hengd fyrir galdra. Nokkrir dóu í fangelsi Salem-borgar meðan þeir biðu réttarhalda svo allt í allt létust tuttugu og fimm manneskjur vegna þess að fram höfðu komið ásakanir um galdra.

Nú á dögum bregður hins vegar svo við að nornir eru sífellt meira mæli hættar sinni illsku. Í gömlum ævintýrum eru vissulega til vænar konur sem hjálpa hetjunni og leggja gott til þegar allt er að fara í óefni, í Öskubusku er það álfkonan góða og í Þyrnirós koma þrjár álfkonur að vöggunni og ein leggur á hana ill álög en önnur nær að leggja líkn við þraut og tryggja að hægt sé að bjarga prinsessunni. Nútímamenn þekkja hins vegar best Hermione úr Harry Potter, Glindu úr Galdrakarlinum í Oz, Samönthu góðu nornina í sjónvarpsþáttunum Bewitched og þónokkrar fleiri. Nýlega var svo frumsýnd kvikmyndin Practical Magic 2 með þeim Söndru Bullock og Nicole Kidman í hlutverkum sérdeilis góðra norna. Hugsanlega er þetta hluti af tilhneigingu allra illra vætta til að batna með aldrinum. Grýla gamla er til að mynda ekki svipur hjá sjón miðað við það sem áður var og hið sama gildir um afkvæmi hennar jólasveinana. Það gæti hugsast að ógnin eigi ekki jafn greiða leið að okkur og áður var eftir að raflýsing borga og bæja kom til. Þess vegna þurfi meira til að hræða úr okkur líftóruna en gamlar sagnir af litlum konum með kryppu og illilegt augnaráð.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.