Ostatertan með kaffibragðinu er úr annarri vídd, hún er svo bragðgóð. Þessi terta er líka einföld í undirbúningi en í þessu tilfelli var keyptur tilbúinn tertubotn sem fæst í stórmörkuðum. Hann má auðvitað baka sjálfur ef fólk vill en þetta er einfaldur súkkulaðibotn.
3 dl rúsínur
1 dl kaffilíkjör
400 g rjómaostur
1 1/2 dl flórsykur
1/2 l rjómi, léttþeyttur
1 1/2 dl kaffilíkjör
1 1/2 dl sterkt kaffi
6 matarlímsblöð
brúnn tertubotn, fæst tilbúinn
kaffibaunir og kakó til skrauts ef vill
Leggið rúsínurnar í bleyti í 1 dl af líkjörnum yfir nótt. Leggið matarlímsblöðin í kalt vatn í 5 mínútur. Takið þau upp úr vatninu og bræðið í heitu kaffinu. Þeytið saman rjómaost og flórsykur. Blætið kaffiblöndunni og 1 1/2 dl af líkjör saman við. Léttþeytið rjómann og blandið honum varlega saman við blönduna. Setjið brúna tertubotninn í lausbotna hringform. Setjið rúsínunum yfir botninn og hellið fyllingunni ofan á. Skreytið tertuna með því að strá kakói yfir hana í gegnum sigti og sáldrið kaffibaunum ofan á. Gott er að láta tertuna standa í ísskáp yfir nótt svo hún stífni vel.