Þegar HBO hóf framleiðslu þáttaröðinni, Mare of Easttown með Kate Winslet í aðalhlutverki átti engin von á þeir myndu slá í gegn en raunin varð önnur. Þessi þættir voru kærkomin nýung í glæpaseríuúrvalið vegna þess að í þeim birtist raunsönn og ófegruð mynd af hversdagslífi í smábæ í Bandaríkjunum og af lögreglurannsókn. Aðdáendur hafa lengi vonast eftir framhaldi og nýlega var gefið út að þáttaröð númer tvö væri í pípunum og fyrirhugað að hefja sýningar á næsta ári.
Alltof oft fáum við þá mynd af rannsóknarlögreglumönnum að þeir séu helteknir af starfi sínu, svo ákveðnir í að ná glæpamanninum að það jaðri við þráhyggju og öllu sé fórnað til að koma vondu köllunum undir lás og slá. Þeir eru einfarar, drykkfelldir en með hjarta úr gulli. Ekkert af þessu á við um Mare Sheehan, aðalpersónu þáttanna. Hún er fyrrum körfuboltastjarna, hefur búið allt sitt líf í sama bænum, Easttown í Pennsylvaníu og vanari að takast á við kvabb eldri kvenna og innrás hálftrylltra fíkniefnaneytenda í hús ættingja sinna í bænum en morðingja.
Hvarf ungrar dóttur, fyrrum liðsfélaga Mare í körfuboltaliðinu, Dawn, hvílir samt óþægilega á henni. Hún gerir sér þó fyllilega grein fyrir að engar vísbendingar eru um hvað gerðist og þar af leiðandi ólíklegt að hún komist lengra með málið. Þegar önnur ung kona finnst myrt kemst hreyfing á hlutina. Þá er kallaður til Colin Zabel, vanur rannsóknarlögreglumaður til að aðstoða Mare. Þegar það gerist hefur hún nýlega kynnst manni, kennara sem er nýkominn til bæjarins, Richard Ryan, leiknum af Guy Pierce og þarf að taka ákvörðun um hvort hún leyfir sambandinu að þróast eða lokar alveg á hann.

Harmleikur í fjölskyldunni
Mare elur upp fjögurra ára sonarson sinn og strax í fyrsta þættinum er gefið í skyn að skýringanna á því sé að leita í einhverjum harmleik. Unglingadrykkja, fíkniefnaneysla barneignir á unga aldri virðast algengar í Easttown, því kynnast áhorfendur einnig í fyrsta þættinum. Erin McMenamin er einstæð móðir. Hún hefur verið í sambandi við einn af vinsælu strákunum og á með honum barn. Hann tekur ekki meiri þátt í uppeldinu en hann kemst af með og neitar að biðja foreldra sína um lán svo hægt sé að gera aðgerð á drengnum til að losa hann við eyrnabólgur. Nýja kærasta hans nýtur þess einngi að kvelja Erin með því að setja upp gerviprófíl á samfélagsmiðlum og þykjast vera strákur sem hefur áhuga á henni og senda henni skilaboð.
Erin fer til móts við þennan pilt um kvöld og kemst þá að því hversu ljótur leikur hefur verið leikinn gagnvart henni. Fyrsti þátturinn endar svo á því að áhorfendur fá að sjá lík Erin í á. Óhjákvæmilega tengja þeir þá saman hvarf Kate Bailey, dóttur Dawn, og örlög Erinar. Kate var fíkniefnaneytandi og fjármagnaði neysluna meðal annars með vændi og því nokkuð ljóst að morðingi er búin að koma sér fyrir í bænum.
Ekki bara um leit að morðingja
Þættirnir snúast alls ekki eingöngu um leitina að morðingjanum heldur einnig sálfræði smábæjarsamfélaga, þá grimmd og klíkuskap sem ríkir meðal unglinganna og vonleysi eldri kynslóðarinnar sem sér drauma sína dofna því lengur sem hún er föst á sama staðnum í sma farinu. Möguleikarnir eru ekki margir og lífið hverfist um það sama dag eftir dag. Svo dynur yfir harmleikur af áður óþekktri stærðargráðu og það kallar á viðbrögð. Munu bæjarbúar geta tekið höndum saman og stutt hvern annan gegnum áfallið? Verður hægt að vinna úr þessu og kallar þetta á meira umburðarlyndi?
Óhjákvæmilega setja atburðir sem þessir djúpt mark á alla. Það er sömuleiðis erfitt að þola lögreglurannsókn með þeirri óþægilegu grannskoðun á einkalífi fólks sem þeim fylgir. Sársauki, samviskubit og ótti eru sömuleiðis útbreiddar tilfinningar og þær eiga sinn þátt í að menn eiga erfitt með að segja satt og rétt frá.
Að sumu leyti minna þessir þættir á Happy Valley, bresku sakamálaþættina, með Söruh Lancaster í aðalhlutverki sem nutu gríðarlegrar hylli víða um heim. Þeir voru sýndir hér á RUV og heilluðu marga. Persónurnar Mare og Catherine Cawood eiga það sameiginlegt að láta sig varða umhverfi sitt og samfélag. Báðar glíma við sorg vegna barnanna sinna og báðar þurfa að takast á við rannsókn mála sem taka mjög á þær. Mare of Easttown voru einstaklega vel unnir þættir, leikurinn fyrsta flokks og handritið frábært. Vonandi fá íslenskir sjónvarpáhorfendur að njóta þess að sjá seríu tvö þegar hún kemur á skjáinn.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







