Arndís Þórarinsdóttir er mörgum afanum og ömmunni kunn eftir að hafa lesið barnabækur hennar fyrir söguþyrst börn. Þótt ljóðabók hennar Köngurváfa sé sannarlega ætluð fullorðnum er þar samt sem áður að finna mörg af höfundareinkennum Arndísar. Dásamlegur húmor og lágstemmd kímni sem stundum fer næstum framhjá lesandanum, einstaklega gott vald á íslensku máli og hæfni til að varpa nýju og einstöku ljósi á hversdagslegustu hluti.
Köngurváfa er gamalt orð yfir könguló. Þetta orð ber í sér einhvern óhugnað og kveikir strax á ímyndunaraflinu. Engar afturgöngur eða ófreskjur sveima þó um bókina þótt leyndarmál höfundar séu svört og loðin og hann sjálfur jafnvel vofa. Hér er brugðið upp myndum af hversdagsleika nútímafólks, hann málaður ljóðrænum litum og það að heilsa og kveðjast, vinna húsverk og fara í þrautakóng verður upplifun. Þetta er falleg, áleitin og vel unnin ljóðabók. Hér er fjallað um jafnvægið í lífinu, um hverfulleikann, það sem við skiljum eftir okkur og stöðu mannsins gagnvart náttúrunni. Hér og hvar bregður fyrir dýrum mismunandi hættulegum og komið er við á afskekktum stöðum þar sem enn eru berjalautir og stórhættulegir pyttir. Köngurváfa er athyglisverð ljóðabók frá góðum rithöfundi.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







