FNÆS er að sögn höfundarins Lóu Hjálmtýsdóttur einnar konu reiðistjórnunarnámskeið. Í hvert sinn sem eitthvað pirrar hana fær hún útrás með því að teikna mynd og hlæja duglega að fyrirbærinu. En þótt hún hafi setið ein og teiknað er hægt að votta að FNÆS dugar öðrum ekki síður til reiðistjórnunar eða bara aukinnar gleði og lífsánægju.
Lóa hefur einstakt lag á skapa viðkunnanlegar fígúrur. Þær eru lifandi og skemmtilegar og manni finnst maður þekkja og kannast við týpuna. Dásamleg svipbrigði birtast allt eftir því hvað gengur á í myndinni og þar eru ótal áhugaverð smáatriði sem vert er að rýna í. Hér er líka bent á skoplegu hliðina á öllum hlutum og það er einmitt svo dásamlegt að hlæja að lífinu og einmitt hláturinn gerir óþolandi hluti bærilega.
FNÆS er óformlegt framhald af Dæs sem kom út 2021. Þar var Lóa á svipuðum slóðum að lýsa hversdagslífinu og stóru og smáu hlutunum sem ná að pirra okkur fá okkur til að fnæsa af pirringi, hneykslun, gleði, reiði, vonbrigðum og uppgjöf. Í Fnæs er að finna nærri 400 myndasögur Lóu frá síðustu fimm árum. FNÆS er sérlega fallega hönnuð bók, stór og vegleg og prentuð á vandaðan pappír.
Lóa Hjálmtýsdóttir er útskrifuð úr Myndlistadeild Listaháskóla Íslands og lærði síðan myndlýsingar í Parsons í New York. Seinna útskrifaðist hún úr meistaranámi í ritlist við Háskóla Íslands. Fyrir utan að vera barnabókahöfundur, myndlistarkona, teiknari, myndlýsir, myndasöguhöfundur og karókístjórnandi er Lóa þekkt fyrir að vera söngkona hljómsveitarinnar FM Belfast. Hún hefur hlotið Barnabókaverðlaun Reykjavíkur og verið tilnefnd til fjölda verðlauna fyrir bækur sínar, meðal annars Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, Íslensku bókmenntaverðlaunanna, Vestnorrænu bókmenntaverðlaunanna og Fjöruverðlaunanna.
Myndin sem prýðir kápu FNÆS er byggð á mynd af Lóu sem tekin var þegar hún fannst fnæsandi inni í skógi sem barn í sænsku Smálöndunum.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







