„Það kvað vera fallegt í Kína“ orti Tómas Guðmundsson á síðustu öld og þótt hann hafi ekki viljað færa sig úr vesturbænum í Reykjavík var hópurinn sem fór þangað með Kristínu A. Árnadóttur ekki sammála. Úrval Útsýn bauð uppá sína fyrstu ferð til Kína með fróðleiksþyrsta ferðalanga í vetur og Kristín var fararstjóri í ferðinni.

Kristín A. Árnadóttir fyrrverandi sendiherra.
Ferðin var mjög vel heppnuð og farþegarnir voru mjög ánægðir. Nú er annað Kínaævintýri í uppsiglingu, 15 daga ferð þar sem einnig verður komið við í Hong Kong, fyrrum breskri nýlendu, og Makaó, gamalli portúgalskri nýlendu. Hvort tveggja eru nú iðandi heimsborgir þar sem kallast á gamli tíminn og nútíminn. Fyrir liggur að kínverska flugfélagið Air China mun í haust hefja beint flug til Íslands með millilendingu í Kaupmannahöfn og það gerir ferðalagið enn þægilegra og styttra en áður. Úrval Útsýn ryður brautina á ný og býður nú uppá framangreinda 15 daga ferð í beinu flugi til Kína 1. nóvember. Þá er ennþá milt haust á þeim slóðum og þægilegt ferðaveður, meðalhiti að degi til 17-21 stig.
Og aftur hefur Kristín samþykkt að vera fararstjóri. Hún er þaulreynd Kínakona, og það liggur beint við að heyra í henni hljóðið, um fyrri ferðina og þá sem í uppsiglingu er.
„Ferð okkar til Kína í mars var mögnuð upplifun, jafnvel fyrir mig sem hef komið oft á þá staði sem við heimsóttum. Ég held að við höfum öll verið sammála um að þegar til Kína var komið hafi tekið við hreint ævintýri frá upphafi til enda,“ segir hún. „Auk þess að skoða hefðbundna túristastaði, sögufræga staði, borgir og náttúrufegurð til fjalla sem engu er lík, skoðaði hópurinn jarðhitaver í Xián sem reist var og starfar í samvinnu Íslendinga og Kínverja, jarðhitaver sem er eitt af mörgum sinnar tegundar í Kína, og er nú samanlagt langstærsta húshitunarkerfi heimsins sem þjónar milljónum heimila. Ísland hefur, í gegnun Jarðhitaskólann, menntað fjöldann allan af sérfræðingum sem nú bera hróður Íslands víða.
En hæst bar auðvitað ótrúleg náttúrufegurð, líkt og af öðrum heimi, og innsýnin í fornt en háþróað menningar- og tæknisamfélag. Hver dagur var nýtt ævintýri fyrir sjónskyn, bragðskyn og hugræn áhrif. Skyggnst var aftur í tímann í fimmþúsund ára sögu og menningu Kína, en jafnframt fram í tímann því Kína virðist vera komin lengra en öll önnur ríki sem ég þekki til í nýtingu og þróun tækni í samfélagsuppbyggingu. Ég neita því ekki að það fór aðeins um mann; hvernig gat allt þetta gerst á svo stuttum tíma? Á sama tíma og vestræn markaðsuppbygging á sér stað í Kína er staðinn vörður um auðuga menningararfleifð. Það sáum við í heimsóknum okkar í mannvirki keisaratímans hof og garða. Miklu hefur verið kostað til varðveislu menningararfsins.“
Verður nóvemberferðin eins og sú fyrri, sömu staðir heimsóttir?
„Að hluta já, en þó eru nokkrar breytingar og fleiri staðir heimsóttir. Ég lagði mikla áherslu á að bæta við náttúruparadísinni Guilin og gömlu nýlenduborgunum Hong Kong og Makaó sem nú eru hluti af Kína. Þegar fólk er komið yfir hálfan hnöttinn er mikilvægt að nýta ferðina eins vel og kostur er. Og það gerum við nú þannig að ferðin er aðeins lengri en sú fyrri. Siglingum á ám og vötnum er bætt við, auk Hong Kong sem var bresk nýlenda frá 1842-1997 og Makaó sem var undir portúgalskri stjórn í nokkrar aldir. Nú eru bæði sérstjórnarsvæði innan Kína. Þar bætast nýjar víddir í ferðina og ný upplifun, menning og saga.“
En segðu mér Kristín, mig minnir að þú hafir sagt Lifðu núna þegar við hittumst á förnum vegi fyrir ári eða tveimur að þú væri komin á eftirlaun, komin í „atvinnuleyfi“ eins og þú orðaðir það, en það lítur út fyrir að þú sért á ferð og flugi með farþega Úrvals Útsýnar. Ertu þá ekki hætt að vinna?
„Tja, ég ætlaði nú bara að taka þessa einu ferð til Kína i vor en svo finnst mér bara svo gefandi og gaman að vera með fólki og nýta reynslu mína í þeim löndum þar sem ég þekki best til. Ég fór tiltölulega snemma í atvinnuleyfið, leyfið frá atvinnunni, þannig að ég er enn í fullu fjöri og vel bara að gera það sem mér finnst skemmtilegt að gera. Vel og hafna. Lifi í núinu,“ segir Kristín og hlær.
https://www.uu.is/packages/results.aspx?searchSessionID=2029225







