Margir eiga erfitt með að slaka nægilega vel á til að geta sofnað á kvöldin. Fólk snýr sér í rúminu í leit að þægilegri stellingu og hugurinn er á fljúgandi ferð. Það er verið að rifja upp atburði dagsins og skipuleggja morgundaginn, jafnvel gráta gömul mistök eða kvíða því að þau kosti viðkomandi lífsgæði og ánægju á næstu árum. Ef þú ert í þeim hópi sem á erfitt með að sofna prófaðu þá snjallt blekkingarbragð sem þróað var að Luc P. Beaudoir doktor í vitsmunafræðum við Simon Fraser-háskólann.
Bragðið felst í því leið hugann að öðru vandamáli til að kveða niður raddirnar í hausnum og bægja kvíðanum frá. Veldu þér fimm stafa orð, t.d. flóki, veltu fyrir þér hugtakinu í svolitla stund og sjáðu fyrir þér flækju. Taktu svo fyrsta stafinn í orðinu, þ.e. f og finndu önnur orð sem byrja á f, fagur, fastur, fleiri og svo framvegis. Næst tekur þú l og gerir það sama, lok, lás, lestur, læti og heldur áfram koll af kolli þar til stafirnir í orðinu eru uppurnir.
Í grunninn snýst þetta um að með því að einbeita sér að öðru en þeim hugsunum sem halda manni vakandi nærðu að slökkva á heilanum. Hjálpa honum að slaka á. Þessi aðferð er nógu flókin til að hugurinn reikar ekki sífellt til að baka að því sem er að halda þér vakandi. Auk þess er kostur að orðin eru óskyld, við erum ekki að leitast við að tengja, búa til heilstæða hugsun eða sögu heldur eingöngu velta upp orðum af handahófi. Og í því felst galdurinn að halda orðunum og ímyndunum sem þau kveikja eins tilviljanakenndum og hægt er.
Ekki telja kindur
Einfaldari leið til að vinna með þessa slökunaraðferð er einfaldlega að byrja á A í stafrófinu og feta sig svo áfram þar til maður vonandi sofnar. Þá má velja sér ákveðinn flokk t.d. ávexti og byrja á ananas, appelsína og halda áfram að banana, döðlum og eplum. Dýr eða matartegundir væru líka þægilegir flokkar því öll þekkjum við mörg heiti sem falla þar undir. Best er að orðin séu ekki of flókin og alls ekki velja sér flokka sem eru líklegir til að leiða þig inn á braut hugsana um pólitík, loftslagsvandann eða önnur alvarleg umfjöllunarefni. Ef hugurinn heldur hins vegar áfram að flökta til baka að áhyggjum eða öðrum hugsunum sem halda þér vakandi og í viðbragðsstöðu er um að gera að byrja bara aftur og aftur, toga hann til baka að leiknum.
Allir þekkja brandarana þar sem einstaklingur liggur uppi í rúmi og telur kindur. Sú aðferð kann að henta sumum en fyrir flesta er sú ímynd of fjarstæðukennd til að hún haldi athygli þeirra til lengdar. Að kalla fram og búa til orð eftir tilteknu kerfi er mun líklegri til að halda huganum uppteknum nægilega lengi til að þreyttur líkaminn geti slakað á og manneskjan náð að sofna.
Af hverju virkar þetta?
Þessi aðferð virkar og hjálpar fólki að slaka á því verkefnið er akkúrat nógu ögrandi og krefst einbeitingar en er ekki líklegt til að senda þig inn í vítahring erfiðra hugsana. Heilinn fær nóg að gera en verkefnið er ekki of erfitt. Margir gera þau mistök þegar þeir reyna að slaka á eða beita hugleiðsluaðferðum að leitast við að reyna að neyða heilann til að hugsa enga hugsun. Það er ákaflega óraunhæft og erfitt. Þess vegna þarf að gefa honum nægilegt fóður en rétta fóðrið.
Þessi aðferð líkt og aðrar slökunarleiðir batnar og virkar betur því oftar sem manneskjan notar hana. Smátt og smátt verður heilinn betri í að kalla fram orð og ímyndir og slökunin kemur því fyrr og verður betri.
Virkar þetta alltaf?
Nei þetta virkar ekki alltaf en það gera engar aðferðir. Líkaminn og hugurinn taka mið af tilfinningum okkar og það er miserfitt að ná stjórn á þeim. En því meðvitaðri sem við erum um hvað er að gerast í lífi okkar og hvers vegna við eigum í innri baráttu af einhverjum toga því betur gengur að ná jafnvægi. Að vinna með huganum á þann hátt sem gert er með þessari aðferð, cognitive shuffling eða vitsmunalegum undanbrögðum hjálpar oft og mörgum finnst hún nytsamleg. Þetta getur einnig verið mjög góð leið til að ná að sofna aftur ef maður vaknar upp um miðja nótt.
Mjög margir iðka hugleiðslu á einn eða annan hátt í daglegu lífi og hún hjálpar fólki að halda hugarró og jafnvægi bæði í daglegu lífi og á kvöldin þegar gengið er til náða. Með æfingunni nær manneskjan auðvitað betra valdi á eigin hugsunum og nær þannig að stjórna tilfinningaflæðinu og streitunni í líkamanum.
Hugleiðsla og cognitive shuffling eru þannig gagnleg hjálpartæki sem koma að góðum notum þegar margt er í gangi og þess vegna erfitt að slaka á. Ef vandinn er ekki tímabundinn og einstaklingar glíma við varanlegar svefntruflanir ættu þeir hins vegar alltaf að leita til heilbrigðisstarfsfólks til að að fá ráð.







