Ágústa Gísladóttir eigandi Lín Design er listakokkur og nýtur þess að standa í eldhúsinu og matbúa eitthvað gott fyrir fólkið sitt. Hún féllst á að deila með lesendum Lifðu núna nokkrum af sínum uppáhaldsuppskriftum. Hér er dásamlegt meðlæti með grillmatnum á ferð.
Rjómakenndar kartöflur sem passa fullkomlega með grilluðu lambi, nautakjöti eða kjúklingi.Hráefni
-
1 kg smáar kartöflur
-
75 g íslenskt smjör
-
2–3 skalottlaukar
-
2–3 hvítlauksrif
-
500 ml rjómi
-
150 g rifinn parmesanostur
-
1–2 tsk kartöflukrydd
-
Flögusalt eftir smekk
-
Fersk steinselja til skrauts
Aðferð1. Sjóðið kartöflurnar
Sjóðið kartöflurnar í 10–15 mínútur eða þar til þær eru rétt að verða mjúkar. Hellið vatninu af og látið þær gufa í 2–3 mínútur.
Sjóðið kartöflurnar í 10–15 mínútur eða þar til þær eru rétt að verða mjúkar. Hellið vatninu af og látið þær gufa í 2–3 mínútur.
2. Brúnið kartöflurnar
Bræðið íslenska smjörið á stórri pönnu. Bætið kartöflunum út á og brúnið þær þar til þær fá fallegan gylltan lit.
Bræðið íslenska smjörið á stórri pönnu. Bætið kartöflunum út á og brúnið þær þar til þær fá fallegan gylltan lit.
3. Bætið lauknum út á
Saxið skalottlaukinn smátt og hvítlaukinn fínt. Lækkið hitann og bætið lauknum út á pönnuna. Látið mýkjast við vægan hita í 3–4 mínútur þar til laukurinn verður glær og ilmandi. Gætið þess að hvítlaukurinn brúnist ekki.

4. Kryddið
Stráið kartöflukryddi og flögusalti yfir og hrærið vel saman.
Stráið kartöflukryddi og flögusalti yfir og hrærið vel saman.
5. Gerið Alfredo-sósuna
Hellið rjómanum yfir kartöflurnar og bætið rifnum parmesanosti saman við. Látið malla við vægan hita í 5–8 mínútur þar til osturinn hefur bráðnað og sósan þykknað.
Hellið rjómanum yfir kartöflurnar og bætið rifnum parmesanosti saman við. Látið malla við vægan hita í 5–8 mínútur þar til osturinn hefur bráðnað og sósan þykknað.
6. Berið fram
Stráið ferskri steinselju yfir og berið fram heitt.
Stráið ferskri steinselju yfir og berið fram heitt.
Tips
-
Ég mæli með að nota íslenskt smælki þegar það er fáanlegt.
-
Íslenskt smjör gefur réttinum einstakt og ríkulegt bragð.
-
Berið fram með grilluðu lambi, nautakjöti eða kjúklingi.
-
Rifinn parmesan og smá fersk steinselja yfir réttinn rétt áður en borið er fram gera hann enn girnilegri.