Sumarlúxus

Nú er engum blöðum um það að fletta að sumarið er komið. Þetta salat er sumarlegt, bæði í útliti og bragði, og sérlega skemmtilegt að bera það á borð í garðveislunni eða bara á sumarlegum degi með fjölskyldunni.

 

2 lítil eggaldin (þessi litlu eru betri)

salt

4 tómatar, helst plómutómatar

3 paprikur, mismunandi litar

1 kúrbítur

ólífuolía

15 litlar mozzarellakúlur

12 – 15 ólífur

2 msk. kapers

2 tsk. balsamedik

nýmalaður pipar

Skerið eggaldin í sneiðar, ekki of þunnar. Skerið hvern tómat í tvennt. Skerið hverja papriku í 6 geira og hreinsið fræin og hvítu rifin innan úr. Skeri kúrbítinn í sneiðar á ská. Hitið grill eða grillpönnu vel og veltið grænmetinu upp úr olíu svo að þau festist ekki við grillið. Steikið grænmetið við háan hita í 2-3 mínútur á hvorri hlið þar til það er orðið meyrt og grillrendur hafa myndast. Ýrið olíu á eftir þörfum. Þegar tómatarnir eru grillaðir er skurðhliðin látin snúa niður. Þegar allt grænmetið hefur verið grillað er það látið á fat eða í víða skál. Dreifið mozzarellakúlunum yfir ásamt ólífum og kapers. Blandið ólífuolíu, ediki, pipar og salti saman, hristið helst í hristiglasi og hellið yfir salatið. Þetta salat er rosalega gott eitt og sér með  brauði eða sem meðlæti með kjöti eða fiski.

 

Ritstjórn júní 10, 2022 16:19