Músa Gordon Lightfoot og örlaganorn John Belushi

Stundum opnast heilt Pandórubox af skrýtnum örlagasögum þegar eitthvað fær mann til að fara á netið í leit að svari við einfaldri spurningu. Það var einn notalegan sunnudagsmorgun að lagið Sundown hljómaði allt í einu til mín yfir grindverkið í garðinum. Nágranni minn hafði sett plötu á fóninn og lagið og textinn fönguðu athygli mína. Ég hafði ekki heyrt þetta lag í mörg ár og ákvað að gúggla textann og þar með flugu næstu klukkustundir framhjá eins og óðar flugur því ég varð föst í sögum og hliðarsögum.

Að sögn Gordons Lightfoot var Cathy aðlaðandi kona sem heillaði karlmenn.

Gordon Lightfoot höfundur og flytjandi lagsins Sundown er án efa þekktasti lagahöfundur Kanada. Lög hans eru áleitin, falleg og öll segja þau sögur. Sundown kom út árið 1974 og Gordon var þá þegar vel þekktur. Margir af frægustu tónlistarmönnum þess tíma höfðu sungið lögin hans, m.a. Peter, Paul and Mary, Ian & Sylvia og Marty Robbins. Á seinni hluta sjöunda áratugarins fór hann hins vegar að flytja lög sín sjálfur og hafði náð umtalsverðum árangri. Hans þekktasta lag var If You Could Read My Mind en það klifraði upp vinsældalistann í Bandaríkjunum á miklum hraða. En svo kom Cathy Smith inn í líf hans.

Auglýsing

Hún var bakraddasöngkona og leikkona, hafði vakið athygli í kvikmyndunum The Magic Garden of Stanley Sweetheart og Joe Hill. Hún hitti Gordon fyrst seint á sjöunda áratugarins og þau áttu í stuttu ástarsambandi. Hann var giftur og þau fóru hvort sína leið. Þegar hún tók saman við Gordon aftur var hún farin að glíma við alvarlegan fíknisjúkdóm. Hún fjármagnaði neysluna með því að selja tónlistarfólkinu sem hún umgekkst fíkniefni. Gordon Lightfoot heillaðist af henni og þau tóku saman um svipað leyti og hjónaband hans og Britu Ingegert Olaisson var að liðast í sundur árið 1971. Hann sagði síðar í viðtali að Cathy hafi verið heillandi kona, karlmenn hafi laðast að henni og það hafi valdið því að hann varð ákaflega afbrýðisamur.

Chasing the Dragon er ævisaga Cathy Smith.

Afbrýðisemin varð kveikja að lagi

Kvöld nokkurt hafði Cathy farið út og Gordon sat einn heima. Þá tóku efasemdirnar að læðast inn í huga hans og fór að velta fyrir sér hvar hún væri og með hverjum. Til að fá útrás fyrir þessar óþægilegu tilfinningar fór að hann að glamra á gítarinn og lagið Sundown varð til. Þegar það kom út flaug það strax inn á alla vinsældalista og sat þar lengi. Samband Cathy og Gordons entist hins vegar ekki og þegar því lauk samdi hann annan smell Rainy Day People. Það var venja hans að segja sögur úr eigin lífi í lögum sínum og kannski er það þess vegna sem þau sitja í fólki og vekja með því áleitnar tilfinningar. Líklega þekkja allir það að sitja einir heima meðan makinn er úti að skemmta sér og finna óöryggið læðast að sér eða sjá eftir ástvini þótt menn viti að sambandið var í raun dauðadæmt.

Velgengni Gordons hélt áfram en leiðin lá niður á við hjá Cathy og fíkniefnasalan varð brátt hennar eina atvinna. Árið 1982 fékk hún símtal frá vini sínum John Belushi. Hann bað hana að koma með „speedball“ (speedball er blanda kókaíns og heróins) til sín í bústað við Chateau Monmont-hótelið. Hún gerði það og þegar þangað kom treysti hann sér ekki til að sprauta sig sjálfur og bað hana að gera það. Cathy varð við beiðni hans og fór en þetta varð síðasti skammtur Johns. Hann lést af ofskammti og líkamsræktarþjálfari hans fann hann daginn eftir.

Cathy játaði sjálfviljug að hafa átt þátt í dauða hans og var ákærð fyrir manndráp af gáleysi. Hún var dæmd fimmtán mánaða fangelsi. Þar kynntist hún meðal annars Susan Atkins, Lesley Van Houten og Patriciu Krenwinkel úr kvennabúri Charles Manson og þáttakendum í morðum hans og morðtilraunum. Ólíkt Manson-konunum iðraðist Cathy ævinlega gjörða sinna og hún trúði vinkonum sínum fyrir því að hún sæi ævinlega eftir því að hafa ekki staldrað við hjá John eftir að hafa sprautað hann. Hún sagðist sannfærð um að þá hefði hún náð að bjarga lífi hans. Í fangelsinu fékk hún það verkefni að kenna konunum að nota tölvur. Það var þar sem hún mætti Manson-konunum og síðar sagði Cathy að hún hefði aldrei verið óttast fólk en Susan Atkins hefði nánast hrætt úr henni líftóruna.

Réttarhöldin tóku á og Cathy iðraðist allt sitt líf að hafa ekki staldrað við og fullvissað sig um að John væri í lagi.

Munaðarlaus við fæðingu

Segja má að líf Cathrine Evelyn Smith hafi verið markað ógæfu frá upphafi. Móðir hennar dó skömmu eftir fæðingu hennar og þá varð litla stúlkan munaðarlaus. Hún var ættleidd af fjölskyldu í Ontario í Kanada. Sextán ára gömul féll hún fyrir trommaranum Levon Helm í hljómsveitinni The Hawks, Haukarnir breyttu nafninu síðar í The Band. Hann var sjö árum eldri en hún en það stóð ekki í vegi fyrir sambandi þeirra. Cathy fylgdi bandinu eftir og fékk vinnu sem bakraddasöngkona.

Hún tók saman við Gordon, eins og áður hefur verið rakið, en þegar sambandi þeirra lauk flutti hún til Los Angeles og vann um tíma fyrir lögfræðinginn Edward L. Masry en nafn hans er þekkt vegna síðara samstarfs hans við Erin nokkra Brockovich og Albert Finney túlkar hann listilega í kvikmynd um frægustu málaferli þeirra tveggja. Cathy entist ekki lengi í starfi hjá lögfræðingnum og þegar hún kynntist Keith Richards í The Rolling Stones og fór hún aftur að vinna við tónlist. Hún fékk tækifæri til að spreyta sig í kvikmyndum en tókst ekki að fylgja því eftir. Sennilega hefur fíknin staðið í vegi fyrir því og Cathy var farin að sjá fyrir sér með dópsölu. Svo fór sem fór og 1983 fer hún í fangelsi og þar skrifaði hún ævisögu sína, Chasing the Dragon, en bókin kom út árið 1984.

Eftir að hún var látin laus flutti hún til Maple Ridge í Bresku Kólumbíu og lifði rólegu lífi. Hún starfaði þar sem einkaritari hjá lagafyrirtæki. Cathy Smith lést árið 2020 eftir langvarandi erfið veikindi.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.