Arnaldur Indriðason er í fantaformi í nýjustu bók sinni, Morðið á Evelyn Gray. Til að byrja með er titillinn frábær, kallast á við nokkrar af frægustu sakamálasögur allra tíma, The Murder of Roger Ackroyd, Murders in the Rue Morgue, Murder on the Orient Express og ótal fleiri. Ný aðalpersóna er komin til sögunnar og sú er einstaklega áhugaverð. Lóla lögreglukona á Akureyri ber hljóðan harm í bakpokanum, er heldur hvatvís og um of áköf í að ná árangri en frábær rannsakandinn.
Lóla er beðin að halda austur á Kópasker frá Akureyri til að skoða hvað er að gerast meðal hóps kvikmyndagerðarfólks sem þar er statt að taka upp sjónvarpsseríu. Brotist hefur verið inn í húsbíla á staðnum og einhverju smávægilegu hnuplað og nýjasta nýtt er að skemmdarverk hefur verið framið á þyrlu á staðnum. Yfirmaður Lólu telur að heimamenn séu að baki en vill umfram allt að hún rói liðið með nærveru sinni og nái að ýta þessu smámáli út af borði lögreglunnar.
Þegar Lóla kemur á staðinn er fljótlega ljóst hver er að baki þjófnuðunum en skemmdarverkið er flóknara. Fyrr en varir skellur á hið versta veður og aðalleikkonan Evelyn Gray finnst myrt í húsbíl sínum. Í stað þess að bíða af sér veðrið og eftir hjálp hefur Lóla rannsókn og fær í lið með sér fyrrverandi rannsóknarlögreglumann úr Reykjavík, sem býr á staðnum. Sá heitir Bensi og reynist Lólu betri en enginn.
Þetta er frábær bók. Arnaldur eins og hann gerist bestur. Smábær í snarbrjáluðu veðri, rafmagnið fer og ekkert net, ónægt og hrætt fólk innilokað og morðingi einhvers staðar í hópnum. Það gerist ekki betra nema jú þegar við bætist, íronísk kímni, stórskemmtilegar persónur og þónokkur ádeila á skrum, hégómi og brenglun í kringum kvikmyndabransann. Framhliðin er það eina sem skiptir máli og ekki víst að nokkur fylling sé á bak við hana. Sumt fólkið er einfaldlega rétt eins og leikmyndin, framhliðin ein sem svo liggur í brotum eftir að stormurinn hefur skekið hana. En margir halda eins og þeir geta í einlægnina, heiðarleikann og eitthvert brot af sjálfsvirðingunni. Hér kallast einnig á einfalt líf og heilsteypt og eftirsóknin eftir vindi í nútímasamfélagi. Frægðin og nafnleysið og óttinn við að falla af stalli. Morðið á Evelyn Gray er svo frábærlega uppbyggð að ef hún væri steik væri óhætt að fullyrða að hún væri óvenjulega safarík.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







