
Nafnið á sýningunni, Hringrás, er hægt að túlka á margan hátt í málverkinu. Litapallettan er jú hringrás, hringlaga flæði í mynstri og eða litum. Hin daglega rútína eða fæðing til dauða, endurtekning eða endurnýting. Allt þetta er hægt að sjá í málverkum þátttakenda á þessari samsýningu, þar sem hverjum og einum eru gefnar frjálsar hendur til að túlka nafnið á sýningunni.
Um 40 félagsmenn Myndlistarfélagsins Litku taka þátt í sýningunni Hringrás á Borgarbókasafninu Spönginni sem stendur til 28. nóvember.
Litka var stofnað 2009 og er öllum frjálst að ganga í félagið. Það sem félagsmenn eiga sameiginlegt er að mála á eigin forsendum, njóta þess og hittast og einnig að sýna saman afraksturinn.







