„Sterkari bein – hreyfing er lykillinn að færri beinbrotum“

Beinþynning er algengur sjúkdómur sem eykur hættu á beinbrotum, en með réttri hreyfingu og góðum lífsvenjum er hægt að gera margt til að bæta beinheilsuna. Á námskeiðinu Sterkari bein hjá Heilsuklasanum er lögð áhersla á styrktar- og jafnvægisþjálfun undir faglegri leiðsögn ásamt fræðslu um beinheilsu og forvarnir. Við ræddum við Sigríði Björnsdóttur, innkirtla- og efnaskiptalækni, og Lars Óla Jessen, lýðheilsufræðing og fagstjóra heilsuræktar Heilsuklasans, um mikilvægi hreyfingar og hvernig námskeiðið getur hjálpað fólki að byggja upp styrk, öryggi og betri heilsu til framtíðar.

Sigríður Björnsdóttir innkirtlasérfræðingur

Hvers vegna ákváðuð þið að setja á laggirnar námskeiðið Sterkari bein?

Auglýsing

„Í starfi mínu hitti ég marga einstaklinga með beinþynningu sem vilja bæta beinheilsuna en vita ekki hvar þeir eiga að byrja. Sumir eru jafnvel hræddir við að hreyfa sig af ótta við beinbrot,“ segir Sigríður. „Við vildum því bjóða upp á námskeið þar sem fólk fær örugga og markvissa þjálfun ásamt fræðslu frá fagfólki. Markmiðið er að hjálpa þátttakendum að byggja upp styrk, bæta jafnvægið og gera hreyfingu að sjálfsögðum hluta daglegs lífs.“

Hvað er beinþynning og hvers vegna er mikilvægt að huga að beinheilsunni?

„Beinþynning er sjúkdómur þar sem beinin verða þynnri og brothættari og geta því brotnað við lítið álag, jafnvel við venjulegar daglegar athafnir. Beinþynning er oft kölluð þögull sjúkdómur því fólk finnur yfirleitt ekki fyrir henni fyrr en bein brotnar. Algengustu beinþynningarbrotin eru úlnliðsbrot, samfallsbrot í hrygg og mjaðmarbrot. Þau geta haft veruleg áhrif á hreyfigetu, lífsgæði og sjálfstæði fólks. Þess vegna er mikilvægt að huga að beinheilsunni áður en brot verður,“ segir Sigríður.

Lars Óli Jessen fagstjóri líkamsræktar hjá Heilsuklasanum.

Getur hreyfing raunverulega styrkt beinin og dregið úr hættu á beinbrotum?

„Já, svo sannarlega. Beinin eru lifandi vefur sem bregst við álagi. Rétt eins og vöðvarnir verða sterkari við þjálfun geta beinin einnig styrkst þegar þau verða fyrir hæfilegu álagi. Þess vegna er mikilvægt að stunda reglulega styrktarþjálfun og þungaberandi hreyfingu,“ segir Lars.

„Styrktarþjálfun og þungaberandi hreyfing geta hjálpað til við að viðhalda beinmassa og í sumum tilvikum aukið beinþéttni,“ segir Sigríður. „En ávinningurinn er ekki síður fólginn í sterkari vöðvum, betra jafnvægi og aukinni hreyfigetu. Með því að bæta styrk og jafnvægi getum við dregið úr hættu á byltum, sem eru algeng orsök beinbrota hjá eldra fólki. Regluleg hreyfing er því einn af hornsteinum góðrar beinheilsu, ásamt hollri næringu og lyfjameðferð þegar hennar er þörf.“

Mjaðmabrot geta verið sérlega erfið viðureignar.

Hvaða æfingar eru sérstaklega mikilvægar fyrir fólk með beinþynningu?

„Við leggjum mesta áherslu á styrktaræfingar, jafnvægisþjálfun og rétta líkamsbeitingu,“ segir Lars. „Við þjálfum meðal annars vöðva í fótleggjum, mjöðmum og baki. Sterkir vöðvar auðvelda daglegar athafnir eins og að standa upp úr stól, ganga upp stiga og bera innkaupapoka. Betra jafnvægi getur líka dregið úr hættu á byltum. Þetta snýst því ekki bara um að verða sterkari, heldur líka um að geta haldið áfram að gera þá hluti sem skipta okkur máli í daglegu lífi.

Göngur eru frábær hreyfing, en þær koma ekki í stað styrktarþjálfunar. Best er að sameina styrktaræfingar, jafnvægisþjálfun og þolþjálfun. Við byrjum rólega og aukum álagið eftir því sem styrkur og geta þátttakenda eykst.“

Mannbroddar eru nauðsynlegt öryggistæki á veturnar.

Sumir með beinþynningu eru hræddir við að fara í líkamsrækt. Er sú hræðsla ástæðulaus?

„Það er mjög skiljanlegt að fólk verði óöruggt, sérstaklega eftir að hafa orðið fyrir beinbroti. Sumir óttast að hreyfing geti valdið frekari brotum og forðast því jafnvel að hreyfa sig,“ segir Sigríður. „En hreyfingarleysi getur haft þveröfug áhrif, dregið úr vöðvastyrk og jafnvægi og þannig aukið hættu á byltum og beinbrotum. Þess vegna er mikilvægt að finna örugga hreyfingu sem hentar hverjum og einum. Með réttri leiðsögn geta flestir með beinþynningu stundað styrktarþjálfun og notið góðs af henni.“

Lars tekur undir þetta: „Fólk þarf alls ekki að vera í góðu formi til að byrja. Við aðlögum æfingarnar að getu hvers og eins og leggjum mikla áherslu á rétta líkamsbeitingu og örugga þjálfun. Það er oft mun meiri áhætta fólgin í því að hreyfa sig of lítið en að stunda reglulega þjálfun undir faglegri leiðsögn. Við viljum hjálpa fólki að sigrast á óttanum og öðlast öryggi og sjálfstraust í hreyfingu.“

Hægt er að fræðast um beinheilsu á beinheilsa.is

Hvernig er námskeiðið Sterkari bein byggt upp?

„Námskeiðið stendur yfir í fjóra mánuði. Fyrstu þrjá mánuðina æfa þátttakendur tvisvar í viku í lokuðum hópi undir faglegri leiðsögn. Við leggjum áherslu á rétta tækni, stigvaxandi þjálfun og að hver og einn geti æft á sínum forsendum. Þátttakendur læra einnig á æfingatækin í Heilsuklasanum og fá æfingaáætlun til að nota sjálfir. Þeir sem vilja æfa oftar geta einnig nýtt tækjasalinn á milli tíma. Í fjórða mánuðinum fara þeir í framhaldshóp sem hentar þeirra getu og markmiðum. Markmiðið er ekki aðeins að fólk mæti í ræktina í fjóra mánuði, heldur að það öðlist þekkingu, færni og sjálfstraust til að halda áfram að æfa til framtíðar,“ segir Lars.

Þarf fólk að hafa reynslu af líkamsrækt til að taka þátt og hvers vegna er gott að æfa í hópi?

„Nei, alls ekki. Námskeiðið er sérstaklega hugsað fyrir fólk sem vill byrja að hreyfa sig eða koma sér aftur af stað eftir langt hlé,“ segir Lars. „Það getur verið stórt skref að mæta í líkamsrækt í fyrsta skipti. Í lokuðum hópi fá þátttakendur faglega leiðsögn, stuðning og hvatningu frá öðrum í svipaðri stöðu. Það verður líka auðveldara að skapa reglulega rútínu þegar maður veit að hópurinn bíður eftir manni. Við viljum að fólki finnist bæði öruggt og skemmtilegt að mæta í ræktina.“

Sigríður útskýrir fyrir skjólstæðing hvernig varðveita má beinheilsu.

Námskeiðið inniheldur líka fræðslu. Hvers vegna er hún mikilvæg?

„Við viljum að fólk skilji betur eigin beinheilsu og hvað það getur sjálft gert til að styrkja beinin og draga úr hættu á beinbrotum,“ segir Sigríður. „Á námskeiðinu eru fjórir fræðslufyrirlestrar með innkirtlalækni, næringarfræðingi og íþróttafræðingi. Þar er meðal annars fjallað um beinþynningu, næringu, kalk, D-vítamín, mikilvægi hreyfingar og hvernig hægt er að fyrirbyggja byltur.“

„Fræðslan hjálpar þátttakendum líka að skilja hvers vegna við gerum ákveðnar æfingar, hvernig þær nýtast í daglegu lífi og hvernig hægt er að hreyfa sig á öruggan hátt,“ bætir Lars við. „Markmiðið er að þátttakendur öðlist þekkingu og sjálfstraust til að halda áfram að bæta eigin beinheilsu, ekki bara á meðan námskeiðið stendur yfir heldur til framtíðar.“

Góðir skór og mannbroddar auðvelda fólki að njóta útiveru yfir vetrartímann.

Þú hefur einnig opnað fræðsluvefinn beinheilsa.is. Hvað er þar að finna?

Ég stofnaði fræðsluvefinn beinheilsa.is til að gera áreiðanlegar og gagnreyndar upplýsingar um beinheilsu aðgengilegar öllum á íslensku segir Sigríður. Þar er að finna fræðslu um beinþynningu, áhættuþætti, næringu og meðferð. Á vefnum er einnig kalkreiknivél sem hjálpar fólki að meta daglega kalkinntöku sína, auk myndbanda með styrktar- og jafnvægisæfingum. Markmiðið er að auðvelda fólki að taka virkan þátt í að bæta eigin beinheilsu.“

Samfallsbrot eru ein afleiðing beinþynningar.

Hvað vonist þið til að þátttakendur fái út úr námskeiðinu og hvað mynduð þið segja við þá sem eru að hugsa um að skrá sig?

„Við vonumst fyrst og fremst til að þátttakendur verði sterkari, öruggari í hreyfingum og öðlist meira sjálfstraust,“ segir Lars.„Við bjóðum upp á upphafs- og lokaviðtal þar sem við metum stöðu og framfarir hvers og eins. En það sem skiptir mestu máli er að fólk finni ánægju af hreyfingu og vilji halda áfram.

Við segjum gjarnan við fólk: Ekki bíða eftir að komast í betra form til að byrja. Það er einmitt þess vegna sem við erum hér. Við hjálpum þér að taka fyrsta skrefið og byggja upp styrkinn á þínum forsendum.“

„Það er aldrei of seint að byrja að styrkja sig. Með reglulegri hreyfingu getum við viðhaldið styrk og færni, dregið úr byltuhættu og aukið líkurnar á að geta lifað sjálfstæðu og virku lífi lengur,“ segir Sigríður.

„Markmiðið með Sterkari bein er ekki bara að fólk verði sterkara á námskeiðinu, heldur að það haldi áfram að vera sterkt. Við viljum gefa fólki verkfærin, þekkinguna og sjálfstraustið til að taka eigin heilsu í sínar hendur,“ segja Sigríður og Lars að lokum.

Nánari upplýsingar um námskeiðið Sterkari bein og skráningu má finna á heimasíðu Heilsuklasans. Næsta námskeið hefst í janúar 2027.

Fræðslu um beinheilsu og æfingar má nálgast á beinheilsa.is.