Glæsileg dagskrá í aðdraganda jóla

Það er einstaklega hlýlegt og notalegt um að litast á Borgarbókasafninu nú þegar jólin nálgast og fjölbreyttir viðburðir og samverustundir eru í boði fyrir alla aldurshópa.

Auglýsing

Í aðdraganda jóla býður Borgarbókasafnið upp á fjölda skemmtilegra viðburða fyrir bæði börn og fullorðna; bókaupplestra, föndur, markaði, tónleika og ýmislegt fleira. Margir viðburðanna eru nýir af nálinni en vinsælar samverustundir verða að sjálfsögðu áfram á sínum stað, svo sem krílastundir hannyrðahittingar, íslenskutímar og fleira. Líkt og ávallt er ókeypis á alla viðburðina.

Þá eru spennandi titlar úr jólabókaflóðinu farnir að birtast jafnt og þétt í hillum bókasafnsins og því um að gera að hafa hraðar hendur langi fólk til að næla sér sem fyrst í eintak en hægt er að láta skrá sig á biðlista ef mörg eru að bíða eftir sömu bók.

Á safninu má líka fá lánaða DVD-diska, DVD spilara, tímarit, plötur, geisladiska og spil til að njóta yfir hátíðarnar. Já, meira að segja kökuform fyrir jólabaksturinn og jafnvel saumavélar fyrir þau sem vilja búa til persónulegar og fallegar jólagjafir, sauma sér hátíðarföt eða hressa upp á gamla jóladressið!

Nánar má lesa um dagskrána, safnkostinn og þjónustuna á heimasíðu Borgarbókasafnsins:
https://borgarbokasafn.is