Árlegur endurreikningur vegna lífeyrisgreiðslna frá TR vegna ársins 2024 liggur nú fyrir á Mínum síðum TR. Athygli vekur að endurkröfur lækka milli ára og að hátt í 19 þúsund einstaklingar eiga inneign. Í fréttatilkynningu frá TR kemur einnig fram:
- Um 26%, eða hátt í 19 þúsund einstaklingar eiga inneign og fá hana greidda 1. júní næstkomandi. Miðgildi inneigna er um 66.000 krónur.
- Um 66%, eða rúmlega 45 þúsund einstaklingar, fengu ofgreitt árið 2024 og þurfa að endurgreiða í samræmi við það, frá og með 1. júní næstkomandi. Miðgildi endurgreiðslna er um 114.000 krónur.
Færri þurfa að endurgreiða en í fyrra
Í uppgjöri í maí fyrra fyrir árið 2023 var hlutfall þeirra sem fengu ofgreitt 78% en er nú 66% fyrir árið 2024 sem er nokkur lækkun á milli ára.
Ástæður ofgreiðslna árið 2024 er fyrst og fremst hægt að rekja til fjármagnstekna, en fjármagnstekjur voru mun hærri heldur en viðskiptavinir höfðu áætlað.
Um 82% lífeyrisþega eru með innan við 200.000 króna frávik í niðurstöðu sinni, samanborið við 60% hlutfall á árinu 2023.
Endurkröfur lækka á milli ára
Miðgildi endurkrafna lækkar nokkuð á milli ára, en það var 118.000 krónur í fyrra en er nú um 114.000 krónur. Ofgreiðslur sem leiða til endurgreiðslna myndast vegna mismunar á áætluðum tekjum og rauntekjum sem koma fram í skattframtali fyrir árið 2024.
Vakin er athygli á að innheimta hefst nú 1. júní en hófst 1. september áður. Með því móti er samræmis gætt á milli innheimtu krafna og endurgreiðslu inneigna sem einnig fer fram 1. júní. Frestur á innheimtu krafna til 1. september olli í mörgum tilvikum misskilningi og óþægindum fyrir viðskiptavini að hefja endurgreiðslur svo löngu frá birtingu kröfunnar. Með þessu móti fylgist að birting ákvörðunar og framkvæmd.
Viðskiptavinir geta andmælt niðurstöðum uppgjörs til og með 31. maí 2025. Það er gert á Mínum síðum TR.
Úrræði vegna niðurstöðu uppgjörs og innheimtu krafna
Almenna reglan er að kröfur beri að endurgreiða á 12 mánuðum en sérstaklega er bent á að ef það reynist íþyngjandi er ávallt hægt að hafa samband við TR og semja um greiðslur til lengri tíma.
Af hverju þarf að leiðrétta greiðslur til viðskiptavina TR?
Greiðslur frá TR byggja á tekjuáætlunum viðskiptavina, þar sem áætlað er hvaða tekjur viðkomandi Tryggingastofnun | Hlíðasmára 11 | 201 Kópavogi | Sími: 560 4400 | tr.is 1/2
hefur á næsta ári. Endurreikningurinn sem TR birtir í dag byggir á tekjuupplýsingum
úr staðfestum skattframtölum fyrir árið 2024. Þessi samanburður leiðir í ljós hvort viðkomandi hafi fengið greitt í samræmi við réttindi sín, eða hvort frávik valdi því að um van – eða ofgreiðslu hafi verið að ræða á síðastliðnu ári. Segja má að eðlilegt sé að frávik á greiðslum komi fram við endurreikning þar sem erfitt getur reynst að áætla nákvæmlega tekjur fram í tímann.
Þrátt fyrir að viðskiptavinir beri ábyrgð á að tekjuskráning sé sem réttust þá er starfsfólk TR stöðugt að leita leiða til þess að draga úr því misræmi sem getur orðið á milli tekjuáætlunar og rauntekna. Þannig er sífellt unnið að betra upplýsingaflæði milli TR og lífeyrissjóða sem og við skattyfirvöld.
TR hefur að auki haldið áfram að kynna sérstaklega greiðslufyrirkomulag þar sem viðkomandi fær eina greiðslu á ári, sem hentar vel þeim viðskiptavinum sem eru að fá tiltölulega lágar greiðslur mánaðarlega.