Fallega mótaðar varir eru andlitsprýði

„Það á alltaf að byrja með blýanti og móta varirnar“, segir Ragna Fossberg förðunarmeistari, en Lifðu núna spurði hana um notkun varalita. „Ef vörin er lítil má stækka hana örlítið með blýanti og einnig má forma varirnar, því sumir eru með skakkar varir“, segir hún.   Ragna segir að þegar varalitur sem er skrúfaður upp sé kominn niður á slétt, sé um þriðjungurinn af honum eftir í hulstrinu. Þannig þurfi konur að eiga varalitapensil til að geta notað allan varalitinn og setja hann á með penslinum.

Ragna Fossberg

Ekki gleyma munnvikunum

Ragna segir mikilvægt að gleyma ekki munnvikunum þegar varaliturinn sé settur á. „Þetta eru ekki tvær lausar einingar. Efrivör og neðrivör sem þekkjast ekki neitt!  Ekkert svoleiðis, þær eru tengdar með munnvikunum“.

Gloss rennur frekar til

Það er mjög gott að nota svokallaðan varalitastoppara. Hann er að sögn Rögnu borinn á, á undan bæði blýanti og varalit. Hann er settur í kantinn á vörunum og kemur í veg fyrir að liturinn renni út. „Það er meiri hætta á því að gloss renni til á vörunum, en varalitur“, segir Ragna. En gloss henti vel fyrir þá sem vilja eitthvað létt og þá í daufum litum. En „fallega mótaðar varir eru mikil andlitsprýði“ segir hún.

Nota frekar minna en meira

Ragna segir að allt varðandi snyrtingu sé persónubundið, einum finnist eitt fallegt, en öðrum annað. En það sé góð regla að nota frekar minna en meira. Oft sé nóg hversdags að hugsa fyrst og fremst um augabrúnir og varalit. Sérstaklega ef konur eru með gleraugu.

 

h

Ritstjórn mars 30, 2023 07:00