Fyrir um það bil þremur áratugum var staðan sú í Hollywood að þegar konur voru komnar yfir fertugt fækkaði mjög bitastæðum hlutverkum og margar urðu að sætta sig við að þar með væri starfsferli þeirra lokið. Ein og ein fékk af og til að stíga fram í aukahlutverkum mömmu eða ömmu þegar handritið krafðist þess. Hlutverkum fyrir karla fækkaði hægar með árunum en þeir urðu einnig búa við að vera ýtt til hliðar fyrir yngri menn þegar fimmtugsafmælið var liðið. En eitthvað hefur breyst og í kvikmyndaheiminum er talað um byltingu gamlingjanna. Skoðum þetta nánar.
Á hverju ári koma nú fram á sjónarsviðið kvikmyndir þar sem roskið og háaldrað fólk er í aðalhlutverkum. Svo virðist að mógúlar glimmerborgarinnar (tinsel town) séu farnir að átta sig á að líf er eftir bæði fertugt og fimmtugt og fólk á þeim aldri er tilbúið að fara í bíó. Til að mynda má minna á fallega kvikmynd, Our Souls at Night með Robert Redford og Jane Fonda í aðalhlutverkunum. Ef einhver hefði fullyrt fyrir ekki svo löngu síðan að kona á níræðisaldri myndi leika aðalhlutverk í stórri kvikmynd árlega hefði sennilega verið hlegið að honum. En þannig er það og fyrir ekki svo löngu mættu svo Candice Bergen, Mary Steenburgen, Jane Fonda og Diane Keaton í The Book Club, stórskemmtilegri mynd um konur á besta aldri sem uppgötva að ástin spyr ekki um aldur. Framhaldsmynd var svo gerðar um þær stöllur, The Book Club Next Chapter árið 2023. Þess má geta að lengi fór Jane einnig með annað aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum, Grace and Frankie, en þeir nutu mikilla vinsælda á Netflix. Mótleikkona hennar í þeim þáttum, Lily Tomlin er áttíu og sex ára.
Diane Keaton hefur sömuleiðis ekki gengið atvinnulaus. Hún er sjötíu og níu ára og lék meðal annars í bresku myndinni Hampstead. Stórfínni mynd um ekkju og ekkil er ná að lækna sár hvors annars og hjálpa hvort öðru að slíta fjötra fortíðar. Hún hefur líka farið með hlutverk í þáttunum The Young Pope og í kvikmyndinni Poms. Candice Bergen jafnaldra hennar er enn á fullu í bæði kvikmyndum og sjónvarpi. Mary Steenburgen er yngst þeirra stalla, aðeins sjötiu og tveggja ára, en hún er enn í fullu starfi og þess má geta að maður hennar, Ted Danson lék nýlega aðalhlutverk í sjónvarpsþáttunum, Man on the Inside, en hann er sjötíu og níu ára.
Karlarnir líka öflugir
Og þeir eru fleiri karlarnir en hann sem enn bera uppi kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Stórskemmtileg mynd um þrjá félaga er leggja til atlögu við bankann er rændi þá aleigunni, Going in Style skartaði þeim Morgan Freeman, Michael Caine og Alan Arkin í aðalhlutverkum og náði gríðarlegum vinsældum. Bretland hefur heldur ekki farið varhluta af þessari byltingu. Skemmst er frá því að segja að sjónvarpsþættirnir Last Tango in Halifax, um eldra par er var í sambandi á sínum yngri árum og nær saman aftur þegar makar beggja eru fallnir frá slógu rækilega í gegn og enn er fólk að horfa á þessa þætti í efnisveitum. Í upphafi átti aðeins að gera eina þáttaröð en viðtökurnar urðu til þess að þær eru urðu fjórar.
Mjög margir bíóunnendur nutu þess að horfa á Dame Judy Dench, Bill Nighy, Tom Wilkinson og Maggis Smith í The Best Exotic Marigold Hotel og framhaldsmyndinni The Second Best Exotic Marigold Hotel. Judy er nítíu og eins árs og ber aldurinn einstaklega vel. Hin óviðjafnanlega Helen Mirren verður áttræð í ár og enn meðal vinsælustu leikkvenna heims. Hún er frábær í sjónvarpsþáttunum 1923, er illskan uppmáluð í nýjum breskum þáttum, Mobland og í haust verður sýnd fyrsta þáttaröðin um Fimmtudagsmorðklúbbinn eftir Richard Osman og þar leikur hún Elísabetu. Allar vita svo að Liam Neeson er enn á fullu sem ósigrandi hetja í hasarmyndum og hann er sjötíu og þriggja ára.
Ekkert bendir til að eitthvert lát sé að þessari útrás gamlingjanna fram á sjónarsviðið. Það er því kannski tímabært að breyta málshættinum góða í allt er sextugum fært.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.