Hertogaynja undir hæl lögfræðings síns

Síðustu ár lífs síns bjó hertogaynjan af Windsor ein í lítilli höll í Frakklandi. Hún var mjög einangruð og ævisagnaritarar hennar haldið fram að hún hafi í raun verið lokuð inni af lögfræðingi sínum, konu sem stjórnaði öllu lífi Wallis allt þar til hún dó. Nú hefur Joan Collins hrint af stað því verkefni að gera kvikmynd um þennan tíma í lífi konunnar sem skók breska heimsveldið árið 1936 þegar Játvarður VIII afsalaði sér konungdómi til að geta gifst henni.

Wallis Simpson og Játvarður VIII

Wallis Simpson þótti einstaklega glæsileg kona og hún var mjög smekkleg. Ein af þessum konum sem nær að skapa eigin stíl og leggja línurnar í tískuheiminum. Hún átti mikið af fallegum og dýrum skartgripum sem hertoginn keypti handa henni í gegnum tíðina. Hún hafði einnig dálæti á pug-hundum og þeir voru alltaf nokkrir á heimilinu. Auk þess voru þau hjónin þekkt fyrir einstök matarboð þar sem borðbúnaðurinn og borðskreytingar voru hluti af upplifuninni. En þegar Játvarður dó árið 1972 missti Wallis að miklu leyti tengslin við vinahóp þeirra. Líkt og iðulega gerist kenndu breskir fyrirmenn henni fyrst og fremst um að Játvarður sagði af sér en seinni tíma sagnfræðingar vilja meina að fleiri skýringar komi til, m.a. tengsl hans við og hrifning á þýska nasistaflokknum. Þótt leitt hafi verið líkum að því eru engar óyggjandi sannanir fyrir að svo hafi verið.

Margir hafa einnig verið til að hneykslast á og tíunda hversu taumlaus og ríkumannlegur lífstíll þeirra hjóna var. Áður hefur verið nefnt skartgripasafn frúarinnar, aðeins bresku krúnudjásnin slá því við og safn Elizabeth Taylor smáræði í samanburði við það. Reyndar átti Elizabeth nælu, the Prince of Wales Broach, sem Wallis hafði átt áður, en leikkonan keypti hana á uppboði hjá Sotheby‘s eftir andlát hertogaynjunnar. Það þótti tíðindum sæta að Játvarði hafi verið haldið uppi af bresku konungsfjölskyldunni eftir að hann lét af konungdómi. Um tíma var hann reyndar landstjóri á Bahama-eyjum en lét af því embætti árið 1945 og eftir það bjuggu þau hjónin í Frakklandi.

Isaballa Rosselini í hlutverki Suuzanne Blum.

Náði ótrúlegu taki á Wallis

En aftur að síðustu árum Wallis Windsor. Eftir lát mannsins síns bjó hún í höllinni við One Bois de Boulogne í útjaðri Parísar. Lögfræðingur hennar Suzanne Blum flutti inn á hana og virðist hafa náð ótrúlegu taki á henni. Henni tókst að hrekja einkaritara henni úr starfi og sannað er að hún kom illa fram við hertogaynjuna, stal skartgripum meðal annars verðmætu Cartier Panthères-úri og þegar gamla konan mótmælti hótaði hún að selja bréf frá eiginmanni hennar hæstbjóðanda.

Og nú er væntanleg kvikmynd um samband þessara tveggja kvenna og það sætir sannarlega tíðindum, ekki síst vegna þess að Joan Collins hyggst sjálf leika hertogaynjuna en leikkonan er 92 ára. Isabella Rossilini mun fara með hlutverk Suzanne Blum. Joan hefur reynt að fá stuðning til að gera myndina frá því árið 1989 en ekki tekist fyrr en nú að hrífa með sér framleiðendur. Hún segir í viðtali við Vogue að sagan hafi alltaf heillað sig og ef fólki finnist konungsfjölskyldan nú vera að ganga í gegnum samskiptaörðugleika sé það ekkert í samanburði við það sem gekk á árið 1936. Aðalástæða þess að ekki hefur tekist fyrr en nú að fjármagna gerð myndarinnar segir Joan vera að enginn hafi haft trú á að almenningur hafi áhuga á lífi kvenna eftir að þær hafi náð ákveðnum aldri en það hefur greinilega breyst.

Það var svo á níunda áratug síðustu aldar að Joan heimsótti höllina þeirra, Villa Windsor og hún segist hafa heillast af konunni Wallis þegar hún kom auga á satinnnærbuxur hennar. Þá var þar starfandi maður sem hafði þjónað hertogahjónunum og Joan spurði hann um líf hertogaynjunnar eftir að maður hennar dó. Hann svaraði: „Hún komst í náin kynni við konu sem tók af henni alla stjórn og ég vil helst ekki tala um þetta.“ Auðvitað var forvitni Joan vakin og hún fór að rannsaka líf Wallis Windsor þessi fjórtán ár sem hún lifði mann sinn.

Suzanne Blum tókst að einangra hertogaynjuna frá vinum sínum.

Snjall lögfræðingur af gyðingaættum

Í ljós kom að konan sem þjóninn vildi ekki ræða var, Suzanne Blum. Lögfræðingur sem hafði starfað með góðum árangri í Hollywood. Meðal annars hafði hún unnið fyrir Cary Grant og Jean Cocteau, og var þekkt fyrir að hafa náð góðum fjárskiptasamningi fyrir Ritu Hayworth þegar hún skildi við Aly Khan. En samband hennar við Wallis varð hins vegar langt frá því gjöfult fyrir gömlu konuna. Ljóst er að Suzanne hóf strax að einangra hana frá vinum og öðru starfsfólki. Mountbatten lávarður reyndi til að mynda nokkrum sinnum að nálgast eignir krúnunnar sem voru í vörslu Játvarðar þegar hann dó en varð frá að hverfa tómhentur vegna yfirgangs Suzanne. Wallis hafði gefið henni fullt lagalegt umboð til að fara með öll hennar mál og það nýtti lögfræðingurinn sér óspart.

Það er einnig áhugavert að Suzanne var af gyðingaættum og neyddist til að flýja frá Frakklandi til Bandaríkjanna þegar nasistarnir hertóku landið í seinni heimstyrjöldinni. Wallis var hins vegar vinkona Mitford-systra en tvær þeirra voru mjög hallar undir nasista, önnur þeirra tveggja var sögð ástkona Hitlers. Það er hins vegar áleitin spurning hvernig einni manneskju tekst að ná slíkum völdum á annarri að hún missi gjörsamlega allt vald á eigin lífi. Sérstaklega er það áhugavert í ljósi þess að Wallis var sannarlega hvorki vinalaus né óþekkt. Þvert á móti, hún var rík og fræg og þau hjónin héldu um sig hirð vina sem allir voru ríkir, þekktir og valdamiklir.

Kvikmyndin hefur fengið titilinn, My Duchess og það er John Gore, sem ætlar að ráðast í verkið með Dame Joan Collins. Hann er þekktur Broadway-framleiðandi og hefur hlotið Tony-verðlaunn 25 sinnum. Nýlega stofnaði hann eigið kvikmyndafyrirtæki í London og það tók hann ekki langan tíma að ákveða að vera með í þessu verki því aðeins þremur dögum eftir að hann las handritið var hann búinn að tryggja sér framleiðsluréttinn. Isabella Rossellini var svo valin í hlutverk Suzanne Blum. Hún er 72 ára og er eins og Joan heilluð af sögu þessara kvenna.

Hvers vegna lögfræðingurinn náði svo sterku taki á hertogaynjunni er ráðgáta.

Með andlit sem eru alltaf jafnfalleg

Isabella er dóttir ítalska leikstjórans Roberto Rossellini og sænsku kvikmyndaleikkonunnar Ingrid Bergman. Það olli hneyksli um allan heim þegar þau tóku saman árið 1949 svo það kallast sannarlega á við sögu hertogahjónanna. Ingrid hafði lengi dáðst að myndum Roberto og skrifaði honum bréf þar sem hún lýsti því hversu hrifin hún væri af verkum hans. Hann bauð henni hlutverk í mynd sinni Strombólí og við tökur á henni byrjaði ástarsamband þeirra í milli en bæði voru gift öðrum.

Ingrid varð ófrísk og þau sóttu um skilnað. Sonur þeirra fæddist árið 1950 en tvíburadæturnar Isabella og Isotta Ingrid árið 1952. Samband þeirra Robertos og Ingrid entist ekki en þau systkinin ferðuðust víða með móður sinni og voru á tökustað með henni frá því þau voru smábörn. Það er því kannski ekkert skrýtið að Isabella skyldi gerast leikkona. Hún fékk reyndar ávallt misjafna dóma fyrir leik sinn en í myndum David Lynch, Blue Velvet og Wild at Heart, þótti hún standa sig einstaklega vel. Hún hlaut einnig mikið lof fyrir frammistöðu sína í Big Night, The Imposters, Death Becomes Her og Immortal Beloved. Isabella er tvígift og tvískilin. Fyrri maðurinn hennar var leikstjórinn Martin Scorcese en sá síðari var Jonathan Wiedemann fyrirsæta. Hún á tvö börn, dótturina Elettru Ingrid Wiedemann og soninn Roberto Rossellini sem hún ættleiddi. Lengi var Isabella andlit Lancôme-snyrtivörufyrirtækisins en þegar hún varð eldri var henni skipt út fyrir yngri konu. Það markaði hins vegar tímamót þegar henni var boðið þetta hlutverk aftur þá komin hátt á sextugsaldur og talsmaður Lancôme sagði að því tilefni að hún hefði andlit sem væri alltaf jafnfallegt. Hið sama hefur verið sagt um Dame Joan Collins og óneitanlega spennandi að fá að sjá þessar tvær konur saman í kvikmynd.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.