Góð viðbót við matseðilinn þegar fólk eldist

Allir vita að við eigum að borða minnsta kosti fimm skammta af grænmeti og ávöxtum á dag. Sumir sérfræðingar vilja meira að segja meina að sjö sé nær lagi. En það er fleira sem getur orðið góð viðbót við mataræðið hversdags þegar við eldumst. Lítum á nokkur dæmi.

Auglýsing
  1. Sardínur

Þessi litli ættingi síldar er meinhollur og reglulega góður.  Þær eru ríkar af steinefnum, Omega 3 fitusýrum, B12-vítamíni og D-vítamíni sem við Íslendingar þurfum svo mjög á að halda. Að borða ristað brauð og sardínur í morgun- eða hádegismat er þess vegna mjög góð hugmynd.

  1. Gulrætur

Best er auðvitað að borða fjölbreytta flóru grænmetis og ávaxta og mikið af því en gulrætur innihalda beta karótín. Líkaminn breytir þessu efni í A-vítamín og það er gott fyrir sjónina, húðina og ónæmiskerfið. Litarefnin í gulrótum gefa húðinni einnig hraustlegra og fallegra útlit.

  1. Fræ

Fæstir borða nægilega mikið af trefjum og þegar árin færast yfir glíma margir við hægðatregðu og meltingartruflanir. Að borða fræ og gróft korn er góð lausn á þeim vanda. Grasfræ, sesamfræ, hörfræ og alls konar annars konar korn og fræ eru góð viðbót út á salat, í hafragrautinn eða út í jógúrtið. Svo má búa til gómsæta og holla grauta úr chiafræjum og möndlumjólk með því að setja 2 msk. af fræjum í krukku, hella yfir ½ bolla af möndlumjólk, setja nokkra dropa af vanilluextrakt út í hræra. Þetta er látið standa yfir nótt, tekið fram að morgni og borðað upp úr krukkunni. Til að bæta grautinn enn frekar er frábært að setja efst, bláber, jarðarber, kókosflögur eða ristuð fræ.

  1. Grísk jógúrt

Grísk jógúrt hefur aðeins aðra áferð en önnur jógúrt. Hún er þykkari og sérlega gómsæt. Hana má nota sem uppistöðu í kaldar sósur með öllum mat, borða í morgunmat með ávöxtum, fræjum og öðru trefjaríku útáleggi eða þeyta saman við hana ávöxtum og súkkulaðibitum og frysta.  Allt gómsætt og gott en jógúrtin er góður kalkgjafi og byggir auk þess upp þarmaflóruna, undirstöðu ónæmiskerfisins.

  1. Tófú í stað kjúklings

Kjúklingur er hollt og gott kjöt. Hann er líka hægt að elda á marga mismunandi vegu og þess vegna er hann góður prótíngjafi. En það er tófú líka. Margir prófa að skipta út kjúklingakjöti fyrir tófú í uppáhaldsréttinunum sínum og eru undrandi á hve vel það virkar. Tófú hefur þann kost umfram kjúkling að það er gott fyrir hormónakerfi líkamans, einkum geta konur á breytingaskeiði fundið fyrir breytingu á líðan sinni ef þær borða tófú reglulega því það inniheldur náttúrulegt östrógen.

  1. Ber allt árið

Ávextir eru góðir fyrir okkur en ber eru sérstaklega góð. Nú er hægt að fá fersk bláber, jarðarber, hindber, brómber og vínber hér allt árið um kring. Kirsuber, krækiber, rifsber, sólber og fleiri berjategundir sjást svo í búðunum á uppskerutíma. Engin ástæða til annars en að njóta eða fara sjálfur í berjamó eða út í garð og nýta sér þessar dásamlegu gjafir náttúrunnar. Ber má frysta og þau eru reglulega ljúffeng frosin.

  1. Hnetur

Hnetur eru góður prótíngjafi og eru ríkar af margvíslegum vítamínum og steinefnum. Þær eru sérlega fínn millibiti eða snakk milli mála, frábær viðbót í salatið og passa sérlega vel með laxi og öðrum feitum fiski. Lax í pistasíuhjúp er til dæmis sérstakt ljúfmeti. Þá er laxinn steiktur á pönnu, kryddaður með salti og pipar, síðan hjúpaður pistasíuhnetukurli að ofan og settur inn í ofn þar til hann er gegnum soðinn.