Landssamband eldri borgara heldur árlegan landsfund sinn á Grand hóteli í Reykjavík, miðvikudaginn 29. apríl. Dagskráin er vegleg að vanda og í ár heiðra okkur með nærveru sinni; hæstvirtur Félags- og húsnæðismálaráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson og forseti ASÍ, Finnbjörn Hermannsson, ásamt fleiri góðum gestum (dagskrá fylgir með í sér skjali). Þetta er fyrsti fundur Björns Snæbjörnssonar sem formaður LEB en hann var kosinn í fyrra og tók við af Helga Péturssyni, sem setið hafði í þau fjögur ár sem formaður má sitja. Á fundinum verður Helga minnst sérstaklega en hann féll frá í nóvember sl. Þau málefni sem brenna helst á eldri borgurum þessa lands eru kjaramál og húsnæðismál og verður þeim málefnum gert hátt undir höfði á landsfundinum, eins og vera ber.
DAGSKRÁ
09:30 Skráning hefst – Afhending fundargagna í Háteigi, 4.hæð.
10:15 Setning landsfundar
Björn Snæbjörnsson, formaður LEB
10:30 Ávarp ráðherra
Félags- og húsnæðismálaráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson
10:45 Ávarp frá Alþýðusambandi Íslands
Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ
11:00 Ávarp frá Öryrkjabandalagi Íslands
Alma Ýr Ingólfsdóttir, talsmaður og formaður ÖBÍ
11:15 Kosning starfsmanna fundarins – Formaður LEB
a) Kosning tveggja fundarstjóra
b) Kosning tveggja fundarritara
11:25 Ný félög kynnt og borin upp til samþykktar
a) Félag eldri borgara Vogum
b) Félag 60+ í Grímsnes- og Grafningshreppi
Niðurstaða kjörbréfanefndar – Framkvæmdastjóri LEB
Skýrsla stjórnar – Formaður LEB
– Umræður um skýrslu stjórnar
Ársreikningur yfirfarinn – Sigrún C. Halldórsdóttir, gjaldkeri LEB
– Umræður um ársreikning og afgreiðsla
Fjárhagsáætlun kynnt – Gjaldkeri LEB
Ákvörðun árgjalds – Gjaldkeri LEB
Aðrar tillögur og ályktanir kynntar
Landssamband eldri borgara | www.leb.is | leb@leb.is|12:10 – 13.00 Hádegisverður
13:00 Kynning málefnahópa landsfundarins
Húsnæðismál – Sigurður Ágúst Sigurðsson, formaður húsnæðisnefndar
Kjaramál – Kolbeinn Gunnarsson, formaður kjaranefndar
13:10 Starf málefnahópa
– Húsnæðismál – stjórnandi, Sigurður Ágúst Sigurðsson
– Kjaramál – stjórnandi, Kolbeinn Gunnarsson
14:10 Afgreiðsla mála, tillagna og ályktana
14:20 Lagabreytingar – Framkvæmdastjóri LEB
14:40 Kosningar
a) kosning 3ja aðalmanna í stjórn til 2ja ára
b) kosning 2ja varamanna í stjórn til 1s árs
c) kosning 2ja skoðunarmanna ársreikninga LEB og 2ja til vara
15:00 Kaffihlé
15:30 Tryggingastofnun
Anna Elísabet Sæmundsdóttir, sviðsstjóri ellilífeyris
15:50 Vitundarvakning um netöryggi eldra fólks
Haukur Brynjarsson, Netvís
16:10 Létt og laggott
Auður Harpa Andrésdóttir
16:25 Önnur mál
16:55 Fundi slitið af formanni LEB
__________________________________________________________________________
Eftir Landsfund – Valfrjálst:
19:00 Fordrykkur í boði LEB
19.30 Kvöldverður á Grand Hótel







