Látum ekki aldurinn stýra pilssíddinni

 

Hvenær eiga konur að hætta að ganga í stuttum pilsum er spurning sem margar konur velta fyrir sér. Rúmlega sextug í stuttu, er það um of? Á kona á þeim aldri eingöngu að ganga í pilsum sem  ná  vel niður fyrir hné?

Olga Soffía Einarsdóttir

Olga Soffía Einarsdóttir

Olga Soffía Einarsdóttur, stílisti segir að það sé ekkert einhlítt svar við þessu.

Flöggum fögrum fótleggjum

„Ef kona er með fallega fótleggi, sama á hvaða aldri hún er, hvers vegna ætti hún þá að fela það,“ segir Olga Soffía en bætir við að þumalfingursreglan sé þó  að  pilsfaldurinn síkki í takt við hækkandi aldur.

Aðalatriðið sé þó að fólki líði vel í þeim fötum sem það velji sér og að fötin endurspegli  persónuleikann.  „Ef  konum líður vel í stuttu pilsi og stutt pils klæða þær eiga þær ekki að hika við að ganga í þeim. Ef þær hafa hins vegar einhverjar efasemdir ættu þær að prófa að máta kjóla og pils sem eru í annari sídd,“ segir Olga Soffía.

Falleg sídd

Falleg sídd

Vöxturinn breytist með aldrinum 

Margar konur breytast í vexti í kringum breytingaskeiðið og þá þarf oft að huga að því hvort að ekki sé komin tími til að prófa ný snið og leggja áherslu á nýja líkamsparta.

„Mér finnst það einkennandi fyrir íslenskar konur hvað þær eru sjálfstæðar í fatavali. Þær fylgja tískunni ekki í blindni heldur velja það sem þeim finnst henta,“ segir Olga Soffía.

Ritstjórn nóvember 27, 2014 13:47