Jóna Valgerður Kristjánsdóttir formaður Landssambands eldri borgara segir að það geti orðið erfitt að fylgjast með því hvort breytingarnar á skattkerfinu muni skila sér til neytenda. Sömu sögu sé að segja um vörugjöldin, það verði líka erfitt að fylgjast með áhrifum þeirra breytinga á hag neytenda. Lækkun á efsta þrepinu í virðisaukaskatti
geti verið til hagsbóta fyrir þá sem þurfa að kaupa heimilistæki og slíkt, en þar megi segja að verið sé að lækka þrepið niður í það sem var fyrir kreppu, en þá var það 24.5%. Jóna Valgerður segist ekki sjá betur en að rafmagn og hiti muni hækka, en það sé nauðsyn á öllum heimilum og kostnaðurinn mikill, ekki síst úti á landi. Hún segist heldur ekki sjá að bætur almannatrygginga hækki að neinu ráði til að mæta þessu öllu eða að tekið sé á því að laun hafi á þessu ári verið að hækka miklu meira hlutfallslega en bætur almannatrygginga.
Þá segir Jóna Valgerður að það sé einnig í umræðunni í dag að þáttaka sjúklinga í lyfjaverði eigi að hækka, en það gangi þvert á ályktun LEB, þar sem óskað er eftir lækkun vsk. á lyf eða niðurfellingu.