Sætur og sumarlegur biti

1/2 bolli smjör

85 g súkkulaði, dökkt og ósætt

2 egg

1 1/4 bolli hrásykur

2 msk. espresso skyndikaffiduft

2 msk. kaffilíkjör

1 tsk. vanilludropar

3/4 bolli hveiti

1/2 tsk. lyftiduft

1/4 tsk. salt

hinder og sítrónumelissa

flórsykur

Bræðið smjör og súkkulaði saman í potti við vægan hita og kælið. Þeytið vel saman egg, sykur, espressodufti, líkjör og vanilludropa og hrærið saman við súkkulaðiblönduna. Blandið saman hveiti,  lyftidufti og salti í annarri skál og hrærið vel saman við súkkulaðiblönduna. Smyrjið ferkantað form, u.þ.b. 20×20 sm og hellið deiginu í það. Bakið við 180 C í 2 mínútur eða þar til yfirborðið er orðið þurrt. Leyfið kökunni að kólna, skerið hana síðan í litla bita og setjið sítrónumelissublað og hindber á hvern bita. Stráið að lokum flórsykri yfir.

Ritstjórn júní 18, 2025 07:00