Ókunnugt fólk er fjölskyldusaga eftir Björn Halldórsson. Það hljómar vissulega kaldhæðnislega að fjalla um fjölskyldutengsl undir þessum titli en þannig er í raun ástandið í fjölskyldunni í bókinni. Þau eru hvert öðru nánast ókunnug. Sorgin hefur sundrað þeim en ekki fært þau saman.
Líklega mun flestum finnast eitthvert mynstur úr eigin fjölskyldu kunnuglegt í þessari bók. Þögnin er þrúgandi en samt rífur hana enginn. Það er talað um allt nema það sem skiptir máli og allir vita af bleikum fíl í herberginu en berjast við að horfa á allt annað en hann. Daníel, frumburður þeirra Vilborgar og Elíasar svipti sig lífi. Þótt það sé aldrei sagt má lesa milli línanna að hann glímdi við andleg veikindi.
Þetta áfall setur Vilborgu gersamlega úr jafnvægi um tíma og hún lokar sig af og þótt hún færi sig út úr herberginu og taki til við hversdaginn að nýju er hún innilokuð í sinni sorg. Elías er atkvæðalítill, friðarins maður sem kýs að reyna að geðjast öllum frekar en að taka á málum. Hann þróar með sér óheppilega fíkn og tekst lengi að halda henni leyndri. Dagbjört er miðjubarnið og sú sem berst við að halda öllu fullkomnu hjá sér. Hún er velmenntuð og á frambraut í vinnunni, gift og móðir tveggja barna. En það eru komnir brestir í fullkomna framhliðina. Funi er yngstur systkinanna, þolandi eineltis alla skólagönguna og nýkominn úr meðferð þegar sagan hefst.
Við kynnumst hverri og einni persónu í þessari sögu vel því þau skiptast á að segja frá hvert út frá sínu sjónarhorni. Annað áfall ríður svo yfir þegar Elías lendir í bílslysi og er hætt kominn. Geta þau þá rofið vítahringinn, farið að ræða saman og nálgast hvert annað að nýju? Eða er alltaf nauðsynlegt að ræða alla hluti, Þarf fjölskyldan að gera upp alla hluti og þá er spurningin líka hversu lengi umræðan á að standa og hvenær á að hefja hana og hvar? Ókunnugt fólk er vel skrifuð bók og umhugsunarverð.
Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.







