Vertu til er vorið kallar á þig

Á vorin kviknar löngun hjá flestum til að fara út og hreyfa sig. Birtan, auð jörð og hlýrra veðurfar kallar menn til dáða og þá er um að gera að svara kallinu. Það er hins vegar staðreynd að þeir sem byrja strax að vori halda iðulega áfram allan veturinn, enda fljótir að byggja upp þrek og úthald. Spurningin er að finna sína leið og njóta hennar.

Fótbolti

Fótbolti þjálfar vel fætur, innri og ytri kviðvöðva og rass. Að auki hafa allir sprettirnir, stökkin og og spörkin góð áhrif á hjarta, æðakerfi og brennslu. Að auki má nefna að boltaleikir krefjast þess að leikmenn séu útsjónarsamir og hugsi hratt. Þess vegna er varla til betri leið til að þjálfa viðbragðsflýti. Fótbolti er hópíþrótt. Hann gefur því góð tækifæri til að kynnast nýju fólki, efla eigin hæfni til samvinnu og binda ný vináttubönd. Þær snöggu hreyfingar og harða mikla áreynsla inni á vellinum er einnig ein besta leið sem þekkist til að örva endorfínframleiðslu og auka þannig andlega vellíðan. Bumbuboltahópar æfa bæði innandyra og utan og sjálfsagt að athuga hvort laust pláss sé í einum slíkum nú eða stofna sinn eigin.

Hestamennska

Útreiðar eru mun betri líkamsþjálfun en margir gera sér grein fyrir. Eftir stuttan reiðtúr finna flestir vel fyrir vöðvum í lærum og eftir dagsferð eru kálfarnir farnir æpa á hvíld líka. Innri og ytri kviðvöðvar hljóta sömuleiðis góða þjálfun og bakvöðvar taka vel á þegar reiðmaðurinn situr hestinn rétt. Handleggsvöðvar og axlir eru einnig virk en að auki þjálfast jafnvægið og samhæfing hugar og líkama. Hlutir sem oft vill gleymast að þegar komið er inn í líkamsræktarsali. Útreiðar eru skemmtilegt sport og þeir sem hafa gaman af dýrum njóta þess að umgangast þau en hrossin verða kannski of mikil skuldbinding þegar fólk kemst á virðulegan aldur en víða er boðið upp á hestaferðir og sumir svo heppnir að þekkja hrossaeigendur og fá að njóta umgengni við dýrin í gegnum þá.

Hjólreiðar

Hjólreiðar þjálfa mjög vel vöðva í fótum  og einnig kviðvöðva, bæði ytri og innri. Handleggsvöðvar og axlir fá einnig þjálfun en þó í minna mæli. Að hjóla 32 km í hverri viku dregur mjög úr hættu á hjartasjúkdómum og eykur grunnbrennslu líkamans umtalsvert. Nú er hægt að fá rafmagnshjól sem létta þessa hreyfingu umtalsvert og gera fólki kleift að hjóla á hvaða aldri sem er og fara lengra.

Hjólreiðar eru auk þess mjög hentug leið fyrir þá sem hafa lítinn tíma til að koma hreyfingu inn í þéttsetna dagskrá. Hægt er að hjóla á milli staða, alla daga eða nokkrum sinnum í viku eða fara í góða hjólreiðatúra þrisvar í viku. Margir hjólahópar eru starfandi í borginni, m.a. í tengslum við líkamsræktarstöðvar og gaman að taka þátt í starfi þeirra.

Tennis eða badminton

Tennis og badminton eru fullkomnar sumaríþróttir. Þú æfir handleggsvöðva, axlir, kvið, bak og fætur, einkum lærvöðva. Að auki krefjast þessar íþróttir mikillar einbeitingar og að athyglin sé ávallt á boltanum. Það er góð leið til að skerpa og efla sig á þessum sviðum. Tiltölulega auðvelt er að koma upp neti í garðinum og stunda badminton. Tennisvellir eru fáir hér á landi en þó er hægt að læra og spila tennis á nokkrum líkamsræktarstöðvum og hjá Badmintonsambandi Íslands. Þess má geta að blak þjálfar huga og líkama á mjög svipaðan hátt.

Sund

Aldrei verða íslenskar sundlaugar oflofaðar. Þetta eru sælureitir og góð leið til að hreyfa sig með allri fjölskyldunni. Hreyfing í vatni þjálfar einkar vel nánast alla vöðva líkamans en mun léttara er að hreyfa sig og þess vegna geta allir meira ofan í lauginni. Að synda skriðsund eykur brennslu mjög mikið, er frábært fyrir axlir, bak og fætur. Bringusund þjálfar axlir, upphandleggi, kviðvöðva og fætur vel og sömuleiðis baksund. Sundleikfimi er frábær alhliða þjálfun. Meira að segja leikur ofan í vatninu styrkir vöðva. Hafið með ykkur bolta og farið í brennibolta, blak eða handbolta ofan í lauginni. Prófið að hlaupa í grunnu lauginni það styrkir og þjálfar vöðvana í fótleggjunum.

Göngur, eldra fólk, ganga, par, saman, Göngur

Sumarið er tími langra gönguferða. Margir kjósa að ganga á fjöll en aðrir ganga um falleg, afskekkt landsvæði og njóta fjölbreytni þeirra. Vegna þess hve auðvelt er að velja sér gönguleið við hæfi eru göngur fullkomin líkamsrækt fyrir alla aldurshópa og enginn þarf að vera í sérstöku formi til að byrja. Göngur auka styrk í fótleggjum, kviði og baki. Þær bæta einnig líkamsstöðu og jafnvægi manna. Allir geta byrjað að ganga. Finndu áhugaverða leið í hverfinu þínu og stækkaðu svo hringinn vikulega eða bættu við tímann sem þú gengur.

Sjósund

Sjósund þjálfar og styrkir á sama hátt og sund í sundlaug en kuldinn í vatninu hefur margvísleg aukaáhrif. Meðal annars eykur það mjög brennsluna að vera í kulda, hann dregur úr bólgum í líkamanum og mýkir sára, auma vöðva og sumir telja að hann efli ónæmiskerfið.

Fjallgöngur

Fólk brennir mjög miklu í fjallgöngum og hægt er að vinna upp þrek hratt með því að ganga oft á fjöll. Þar er einnig auðvelt að þjálfa jafnvægi með því að stikla steina í skriðum, ganga eftir mjóum kindagötum og einstigum. Ekki eru allar fjallgöngur fyrir lofthrædda en sumir fjallamenn segjast hafa vanið sig af lofthræðslunni smátt og smátt. Eftir því sem þrekið jókst hafi öryggið sömuleiðis aukist og óttinn við að detta því minnkað. Ef menn ætla að stunda fjallgöngur verður hins vegar að vera vel útbúinn. Fara aldrei af stað án þess að láta vita af sér og gæta fyllsta öryggis á allan hátt.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.