Edda Halldórsdóttir sýningarstjóri og sérfræðingur í verkum Kjarvals leiðir gesti um sýninguna Draumaland á Kjarvalsstöðum sunnudaginn 22. júní kl. 14.00.
Á sýningunni hefur verið safnað saman verkum Kjarvals sem eiga það sameiginlegt að vera sprottin úr hugarheimi handan þess sem er áþreifanlegt og auðskiljanlegt. Verkin eru ýmist með skýrar trúarlegar vísanir í Biblíuna og kristileg minni eða eru óræðari fantasíur hlaðnar táknum, hinu yfirskilvitlega og dulræna. Slík hugðarefni bjuggu í Kjarval alla tíð en eftir dvöl í London og viðkynnin af heimslistinni og innsýn í alþjóðlegan táknheim symbólisma má greina breytingu í áherslum og stílbrigðum sem Kjarval átti svo eftir að þróa á sinn persónulega hátt í gegnum allan ferilinn. Auk verka Kjarvals eru sýnd málverk Einars Jónssonar sem fengin eru að láni frá Listasafni Einars Jónssonar.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir Árskorthafa og Menningarkorthafa.
Skráningarhlekk á leiðsögnina má finna á heimasíðu safnsins.