Hinn fjölhæfi Christopher Walken

Christopher Walken hefur leikið í fjölda kvikmynda og skapað margar minnisstæðar persónur. Hann sýndi og sannaði að hann var leikari sem var kominn til að vera árið 1979 þegar hann fékk sinn fyrsta Óskar til þessa fyrir aukahlutverk í myndinni Deer Hunter en hann á að baki fjölbreyttan feril og er alls ekki hættur að leika þótt hann sé orðinn 83 ára.

Christopher hefur verið giftur Georgiönnu í 57 ár.

Hann þykir sérlega góður í hlutverki Burt Goodman í þáttunum Severance en þeir hafa hlotið góða dóma bæði gagnrýnenda og áhorfenda. Christopher byrjaði reyndar sem barnastjarna í sjónvarpi og var byrjaður að leika aðeins tíu ára gamall. Hann er mjög fjölhæfur leikari og hefur komið fram í margvíslegum kvikmyndum og í hlutverkum þar sem honum tekst að skapa ógleymanlegar persónur. Dæmi þess eru t.d. Pulp Fiction, A View to a Kill, Sleepy Hollow, The Prophecy 1-3, Annie Hall, Deer Hunter og svo mætti lengi telja. Í Catch Me if You Can fær áhorfandinn samúð með honum þegar hann missir allt en sýnir ekki vonleysi sitt af tillitssemi við son sinn sem leikinn er af Leonardo DiCaprio. Fyrir það hlutverk var hann tilnefndur til Óskarsverðlauna í annað sinn en fékk ekki. Hann er einn þeirra leikara sem getur leikið nánast hvað sem er og er alltaf trúverðugur í hlutverki sínu.

Í hlutverki sínu í True Romance en þar sýndi hann magnaðann leik.

Í Bond-myndinni A View to a Kill var Christopher magnaður sem geðsjúklingurinn Max Sorin og það er án efa eitt ódauðlegasta illmenni í Bond-seríunni. Hann vekur hlátur hjá áhorfendum í atriðinu sínu í Pulp Fiction og fær hárin til að rísa á hnakka þeirra í hlutverki hauslausa riddarans í Sleepy Hollow. Í King of New York, mynd  Abels Ferrera, er hann ógnvekjandi sem glæpamaðurinn Frank White og eitt af „cult“ atriðum kvikmyndasögunnar er í mynd Quentins Tarantino, True Romance. Þar leikur Walken mafíósann Vincenzo Coccotti, sem þarf að „yfirheyra“ Dennis Hopper. Þetta er magnað atriði þar sem báðir leikararnir sýna frábæran leik. Walken nær ávallt að heilla áhorfendur. Hann vekur með þeim samúð þótt karakterinn sem hann leikur sé einkar ógeðfelldur og hversu illa sem kvikmyndahúsagestum verður við sumar persónur hans vilja þeir samt alltaf sjá meira af honum.

Í bresku gamanþáttunum Outlaws leikur Christopher Frank Sheldon, bandarískan smáglæpamann sem reynir að byggja upp samband við dóttur sína og barnabörn.

Jafnvígur á gamanhlutverk 

En því fer fjarri að Walken leiki aðeins glæpamenn eða ógeðfellda karaktera. Hann er þekktur fyrir góðan húmor og hefur m.a. komið fram í að minnsta kosti sex Saturday Night Live-þáttum. Honum stendur opið að koma fram í þeim lífseigu og vinsælu grínþáttum hvenær sem hann vill. Hann var einnig ógleymanlegur sem Duane, yngri bróðir Annie Hall í samnefndri mynd Woody Allen. Hann er fantagóður dansari og hefur lkomið fram í tónlistarmyndböndum með Madonnu, Skid Row og Fatboy Slim og sameinar þar fótalipurð og skemmtilega persónusköpun. Hann tekur reyndar dansspor hvenær sem hann getur og tekst alltaf að koma því við hvað sem hann er að leika að bresta í lítinn dans í einhverju atriði jafnvel þótt ekkert slíkt sé í handritinu. Hann er líka ógleymanlegur í bresku gamanþáttunum Outlaws, en þar leikur hann Frank Sheldon, bandarískan smákrimma sem er að leitast við að byggja upp samband við dóttur sína og barnabörn eða svo virðist vera á yfirborðinu. Frank er alltaf með ás í erminni og í leit að tækifærum.

Christopher Walken fæddist 31. mars 1943 og heitir í raun Ronald Walken. Árið 1964 breytti hann nafninu í Christopher eftir að vinur hans sagði honum að það nafn ætti betur við hann. Walken hefur verið giftur sömu konunni, Georgianne Walken, frá 1969 en hún hefur lengst af unnið sem casting-leikstjóri en það er sá sem sér um að ráða fólk í hlutverk í kvikmyndum og sjónvarpi. Þau eiga engin börn að eigin vali og hann hefur sagt að það hafi gert honum kleift að einbeita sér að starfsferlinum. Engan skugga hefur sjáanlega borið á hjónaband þeirra en þrálátur orðrómur var um ástarsamband milli Christophers og Natalie Wood og hann var um borð í snekkjunni Splendour árið 1981 þeegar hún drukknaði. Hann hefur lítið viljað tjá sig um það kvöld aðeins sagt að þetta hafi verið hræðilegt slys en hann kominn í rúmið áður en hún féll útbyrðis. Hann hefur mjög gott orð á sér í bransanum og er sagður ljúfur og þægilegur í samstarfi. Eftir því er einnig tekið hversu blátt áfram og laus við hroka hann er.

Nokkrar staðreyndir um Christopher Walken

Hann vann sem ljónatemjari í sirkus þegar hann var fimmtán ára og segist gjarnan í viðtölum ætla að taka upp þann starfsferil aftur þegar hann hætti að leika. Að því er ekki komið enn.

Mest af öllu hræðist hann að vera í bíl sem fer of hratt. Þetta er í raun fóbía hjá honum.

Hann varð fyrir líkamsárás á götu í New York árið 1980 þegar hann bað tvo menn að lækka tónlistina sem þeir voru að spila. Mennirnir réðust á hann og nefbrutu hann fyrir vikið.

Hann var einn af þeim leikurum sem George Lucas gat hugsað sér að fá til að leika Han Solo í Star Wars.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.