Sumar hetjur vinna verk sín hljótt og afrek þeirra eru ekki fólgin í háreistum minnisvörðum eða byggingum heldur í fólki náð hefur að rétta kúrsinn í tilverunni fyrir þeirra tilstuðlan. Ólafía Jóhannsdóttir var í þeim hópi en vinna hennar á götum Óslóar meðal vændiskvenna og fólks sem glímir við fíkn skilaði mörgum einstaklingum nýju lífi. Slík störf verða aldrei mæld eða vegin með einhverjum mælikvörðum en eru engu að síður ótrúlega dýrmæt. Ólafía var Íslendingum lengi nánast gleymd en í dag vita margir hver hún var ekki síst vegna stórmerkilegrar ævisögu hennar sem Dr. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir skrifaði.
Ólafía átti ekki langt að sækja hugsjónaeldinn. Hún var náfrænka Einars Benediktssonar skálds og alin upp af Þorbjörgu Sveinsdóttur ljósmóður og kvenréttindafrömuði. Ólafía fæddist að Mosfelli í Mosfellssveit hinn 22. október 1863. Hún var dóttir hjónanna séra Jóhanns Knúts Benediktssonar og frú Ragnheiðar Sveinsdóttur. Hjónin eignuðust sjö börn og Ólafía var yngst. Fjárhagurinn var þröngur, ekki síst vegna drykkjuvanda Jóhanns en það varð til þess að Ragnheiður neyddist til að láta yngstu dóttur sína frá sér og það olli þeim báðum miklum sársauka þótt Ólafía hafi sannarlega farið á góðan stað hjá Þorbjörgu móðursystur sinni.
En áður en til þess kom var Ólafía um tíma í fóstri hjá Ólafi Stephensen og Sigríði konu hans í Viðey. Það kom til vegna flutnings fjölskyldunnar frá Mosfelli austur í Meðalland. Ferðin tók tvo daga og landið erfitt yfirferðar svo ekki þótti vert að leggja það á barnið. Í minningum sínum segir Ólafía að sér hafi alltaf fundist vera sólskin í Viðey. Hún kallaði frú Sigríði alltaf „frúna sína“ og frú Sigríður kallaði Ólafíu „Lóu sína“. Það dróst að foreldrarnir gætu sótt litlu stúlkuna en þegar Ólafía var fimm ára sótti móðir hennar hana og fór með hana til Þorbjargar.

Þorbjörg Sveinsdóttir fóstra Ólafíu.
Ákveðin og mælsk
Þorbjörg var ljósmóðir og mjög vinsæl meðal Reykvíkinga. Hún var einnig ákaflega pólitísk, mælsk með afbrigðum og tók oft til máls á fundum í bænum þótt þá tíðkaðist ekki að konur væru að tjá sig um landsins gagn og nauðsynjar. Þorbjörgu var hins vegar liðið það. Kristín amma Ólafíu bjó á heimilinu og það kom ekki síst í hennar hlut að uppfræða barnið en þær mæðgur, Kristín og Þorbjörg voru sammála um að Ólafía yrði að menntast. Hún var því send í Kvennaskólann til frú Þóru Melsteð, þess frumkvöðuls í menntun kvenna hér á landi. Skólagangan gekki þó ekki fyllilega sem skyldi því Ólafía hætti í skólanum eftir að henni og skólastýrunni lenti saman.
Þegar Ólafía var rétt tæplega 25 ára þá langaði hana að lesa til stúdents við Lærða skólann í Reykjavík, en mátti ekki sitja í skólanum þar sem einungis piltar höfðu leyfi til þess. Hún lærði því utanskóla í tvo vetur og tók fjórðabekkjarpróf fyrst íslenskra kvenna árið 1890 og braut þar með blað í menntunarsögu íslenskra kvenna. Þegar hún vildi fá að ljúka stúdensprófi fékk hún ekki leyfi til þess þar sem líða þurfti tveir vetur á milli fjórða bekkjar og stúdentsprófs. Ekki sætti Ólafía sig við það og hætti.
Ólafía var sögð hafa verið skapstór og einþykk og átti til að draga víðtækar ályktanir af atburðum en þeir gáfu tilefni til. Hún var mjög sjálfstæð frá unga aldri og naut mikils frelsis í uppeldi miðað við aðrar konur á 19. öld. Árið 1892 flutti Ólafía til Danmerkur hóf nám í lýðháskólanum í Askov. Tveimur árum síðar hélt hún til Noregs en hún átti heimboð í Noregi hjá norskri bóndadóttur sem hún hafði kynnst í Askov. Í Ósló bjó Ólafía á „Herberget for unge Kvinder“. Forstöðukona þess var frú Lorens en hún var starfandi í Hvítabandinu, alþjóðlegu bindindis- og mannúðarfélagi kvenna. Þarna kynntist Ólafía því starfi og varð það til þess að hún átti þátt í að stofnað var Hvítaband í Reykjavík þann 17. apríl 1895 og hún varð fyrsti formaður félagsins.
Ferðaðist víða og kynnti málstaðinn
Ólafía var lengi í fararbroddi í Hvítabandinu og ferðaðist um landið og stofnaði Hvítabandsfélög. Henni var boðið að sækja heimsþing Hvítabandsins í Kanada og þar vöktu störf hennar og málflutningur mikla athygli. Hún klæddist ávallt peysufötum og bar gljáfægðan kross á brjóstinu. Í ræðustól var hún ófeimin, tilgerðalaus og talaði rólega og með sannfæringu. Ólafía dvaldi í tæpt ár í Ameríku og ferðaðist um Bandaríkin og Kanada og hélt fyrirlestra, aðallega um bindindis- og kvenfrelsismál. Það var lagt hart að Ólafíu að dvelja áfram vestan hafs og starfa á vegum samtakanna, en Ísland var farið að toga í hana aftur.
Ólafía var einnig virk í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga og sótti m.a. Þingvallafund árið 1895 sem fulltrúi Hins íslenska kvenfélags og hafði á fundinum bæði málfrelsi og atkvæðisrétt. Á fundinum átti hún að ræða fjögur mál, þ.e. kvenréttindi, háskóla, stjórnarskrármálið og bindindismál. Ólafía barðist fyrir stofnun Háskóla Íslands og að frumkvæði hennar safnaði Hið íslenska kvenfélag 2348 undirskriftum á áskorun til alþingis um að samþykkja þau frumvörp sem lágu fyrir þinginu um réttindi kvenna og þar voru sjálfstæðiskröfurnar voru ítrekaðar.
Ólafía fluttist til Óslóar árið 1903 og þekktist á götu í borginni á því að hún klæddist ávallt íslenskum peysufötum og bar skotthúfu, sem sýnir ættjarðarást hennar. Skömmu eftir komuna þangað varð hún fyrir einhvers konar áfalli, missti heilsuna og var nánast rúmliggjandi í rúm þrjú ár. Hún átti góða vini og velunnara í Ytterøy í Þrándheimsfirði, sem tóku hana að sér. Á þessum erfiða tíma öðlaðist Ólafía trúarvissu og helgað líf sitt Kristi, fór hún að lesa Guðs orð með kostgæfni og losnaði þá við marga hleypidóma fyrri ára. Það var stefna hennar, sem hún vildi fylgja af öllu hjarta, – eins og hún hefur sjálf skýrt frá, – að leitast við af fremsta megni að gera Guðs vilja, hvað sem það kostaði. Með trúnni á hann fannst henni hún finna nándina við móður sína sem hún þráði alltaf. Hún tók upp fábreytta og einfalda lífshætti sem minna á líf nunna og heilags fólks. Gaf frá sér skartgripi og veraldlegar eigur að miklu leyti. Ólafía skírðist inn í norska baptistasöfnuðinn þá fimmtug að aldri.
Vinur þeirra óheppnustu
Frá 1908 veitti Ólafía forstöðu heimili sem kallaðist „Nanna Storjohanns minne“ sem Hvítabandið rak fyrir fyrir ungar heimilislausar konur, vændiskonur og útigangsfólk í Vaterland-hverfinu í Osló. Konur gátu leitað þar skjóls, fengið mat og aðhlynningu eða tilvísun á lækni en voru algengir meðal vændiskvenna. Vaterland var athvarf drykkjumanna, smáglæpamanna, sárafátæks fólks og miðstöð vændis.
Ólafía átti við mikil veikindi að stríða síðustu ár ævi sinnar og hamlaði það að hún kæmi til Íslands. Síðla sumars árið 1920 ákvað hún að halda til Íslands þrátt fyrir mikil veikindi og gegn læknisráði. Hún taldi að íslenska loftið mundi gera henni gott en sagði síðar að andrúmsloftið væri ekki það sama og áður. Henni fannst samfélagið þröngsýnt og fábreytilegt. Hún lenti í tíðum útistöðum og ritdeilum vegna skoðana sinna. Hún ákvað þess vegna að fara aftur til Noregs 21. janúar 1924 og deyja í framandi landi. Ólafía andaðist 21. júní sama ár í höndum trúarsystra sinna, sem veittu henni andlega og líkamlega aðhlynningu til síðasta dags. Banamein hennar var hálsbólga. Lík Ólafíu var flutt heim til Íslands og liggur hún í Hólavallakirkjugarði við hlið Þorbjargar Sveinsdóttur, fóstru sinnar.
Ólafía skildi eftir sig tvær bækur sem hún lét þýða á íslensku. Fyrri bókin sem ber nafnið De ulykkeligste eða Aumastar allra kom út árið1916, en þar segir Ólafía frá reynslu sinni af starfi sínu með undirmálsfólki, fátækum, vændiskonum og misindisfólki. Sumir líkja sögunum í bókinni til helgisagna. Bókin vakti mikla athygli og varð Ólafía þjóðkunn í Noregi. Bókin hefur verið þýdd á nokkur tungumál. – Þess má geta að Ólafía var fyrsta íslenska konan til að gefa út sjálfsævisögu hún heitir Frá myrkri til ljóss“ og kom út 1925, ári eftir andlát Ólafar.
Minning Ólafíu Jóhannsdóttur lifir
Dr. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir skrifaði bók um ævi Ólafíu Jóhannsdóttur sem kom út árið 2006 sem heitir: Ólafía – Ævisaga Ólafíu Jóhannsdóttur. Íslenska safnaðarheimilið í Osló kallast Ólafíustofa í höfuðið á Ólafíu. Ár hvert heldur söfnuðurinn minningarstund á fæðingardegi hennar 22. október. Stofnaður var svokallaður Ólafíusjóður í minningu hennar og er hægt að sækja um styrki úr þeim sjóði. Sjóðurinn er hjálparsjóður fyrir nauðstadda Íslendinga í Noregi. Nokkrir norskir vinir tóku sig saman og báðu listamanninn Kristinn Pjetursson um að gera brjóstmynd úr eir af Ólafíu og var styttan afhjúpuð 1930 og stendur við Vaterland brúnna í Osló rétt hjá aðaljárnbrautarstöðinni. Undir brjóstmyndinni stendur:
ÓLAFÍA JÓHANNSDÓTTIR. Fædd á Islandi 1863 d. 1924. „De ulykkeliges ven“. Árið 1990 var ákveðið að nefna götu í nýja Vaterlandshverfinu Olafia-gangen, eftir Ólafíu. Hún var kölluð Móðir Vaterlands vegna síns fórnfúsa starfs í þágu meðborgara sinna. Sumir líktu henni jafnvel við Móður Theresu. Einnig er heilsumiðstöðin Olafiaklinikken og verðlaunin Olafiaprisen kennd við Ólafíu. Árið 1996 var gefið út frímerki á Íslandi með mynd af Ólafíu Jóhannsdóttur.







