Verið velkomin í ókeypis kvöldgöngu í miðbæ Reykjavíkur fimmtudaginn 6. ágúst í tilefni Hinsegin daga, þar sem rakin verður saga frelsis- og gleðiganga hinsegin fólks.
Eins og flestir vita í dag þá er Gleðiganga Hinsegin daga hápunktur hátíðarinnar og einn stærsti menningarviðburður landsins. En hvert var upphaf Gleðigöngunnar? Hvernig var tíðarandinn þegar hinsegin fólk blés fyrst til slíkrar göngu? Hvernig hafa áherslur breyst síðan sú fyrsta var gengin, og hvers vegna?
Í tilefni Hinsegin daga leiðir Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, kynjafræðingur og sérfræðingur í málefnum hinsegin fólks, gesti um slóðir Gleðigöngunnar og forvera hennar í gegnum árin í miðbæ Reykjavíkur fimmtudaginn 6. ágúst.
„Til hvers þurfum við eiginlega þessa Gleðigöngu? Er þetta ekki bara komið, eru spurningar sem sumir spyrja og þarna verður meðal annars leitast við að svara því,“ segir Ugla og getur þess að farið verði yfir söguna í stuttu máli og gengið á ýmsa staði í miðbænum sem tengjast menningu hinsegin fólks og göngunni góðu.
Gangan hefst kl. 20:00 á horni Lindargötu og Frakkastígs, þar sem fyrsta félagsheimili Samtakanna ’78 stóð eitt sinn, en sjálf gangan tekur um eina og hálfa klukkustund.
Ókeypis er á viðburðinn og fer hann fram á íslensku.
Öll hjartanlega velkomin.
Þess má geta að gangan er hluti af viðburðaröðinni Kvöldgöngur en að henni standa Borgarbókasafn Reykjavíkur, Borgarsögusafn Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkur. Kvöldgöngurnar fara fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:00 – 21:30 yfir sumarmánuðina og eru öllum gjaldfrjálsar.
Nánar um gönguna á fimmtudag á heimasíðu Borgarbókasafnsins:







