Hvílir bölvun á sumum vegtyllum og titlum?

Í Bretlandi hafa fjölmiðlamenn velt fyrir sér hvaða titla börn ríkisarfans, Vilhjálms, muni bera þegar faðir þeirra tekur við konungdæminu. George mun að sjálfsögðu verða prins af Wales, Karlotta verður Royal Princess en þann titil bera elstu dætur Bretakonunga jafnan en óljósara er hvaða titil Lúðvík sá yngsti mun fá. Hann ætti að réttu að fá hertogatitil en ekki margir slíkir eruámlaus og meðal breska aðalsins er talað um að sumum titlum fylgi slík óhamingja að menn vilja helst ekki taka við þeim.

Auglýsing

Einn slíkra er hertoginn af Clarence. Ekki margir hafa borið þann titil í gegnum tíðina en orðrómurinn um bölvun er tilkomin vegna þess hvernig þrír hertoganna af Clarence létu lífið. Allir fengu þeir snöggt andlát, í sumum tilfellum nokkuð dularfull en í öðrum er óhætt að segja að þeir létust við óheppilegar aðstæður. Breskir sagnfræðingar segjast þess vegna vera á þeirri skoðun að best sé að þessi titill deyji út.

Lionel af Antwerpen fyrsti hertogi af Clarence.

Hertogadæmið af Clarence varð til þegar Játvarður III stofnsetti það árið 1362 til að skreyta þriðja son sinn einhverjum fjöðrum. Sá hét Lionel, var kenndur við Andwerpen í Belgíu því þar fæddist hann, og víst er að kóngurinn hafði aðeins í huga að tryggja velferð og framtíð sonar síns. Lionel virðist hins vegar hafa verið afskaplega óheppinn maður og segja má að bölvunin hafi byrjað með honum. Hann var rúmlega tvítugur þegar hann fékk titilinn og nýgiftur, annarri eiginkonu sinni, Violante Visconti, dóttur Galeazzo II Visconti lávarði af Mílanó. Ætla hefði mátt að við honum blasti langt farsælt líf en Lionel lést snögglega örfáum árum eftir að hann varð hertogi og sumir töldu nokkuð víst að tengdafaðir hans hefði eitrað fyrir honum. Visconti-fjölskyldan hafði orð á sér fyrir nokkuð frjálslegt siðferði og íta svo á að tilgangurinn helgaði meðalið ef einhver stóð í vegi fyrir þeim.

Hvatvísi hermaðurinn

Sá sem næst fékk þann heiður að vera krýndur hertogi af Clarence var Thomas Lancaster, næstelsti sonur Hinriks IV. Hann var tuttugu og fjögurra ára þegar tiltillinn féll honum í skaut en það var árið 1412. Thomas var mikill hermaður og tók virkan þátt í skærum föður síns hvort sem það var á vígvellinum eða við stjórn landsins. Hann lést í bardaga í Frakklandi nánar tiltekið í bardaganum um Baugé. Það var illa ígrunduð árás af hálfu Englendinga og mannfallið í þeirra röðum mikið. Thomas var háttsettur herforingi og hefur átt sinn þátt í að skipuleggja og fyrirskipa árásina. Hann var aðeins þrjátíu og þriggja ára þegar hann lést.

George Plantagenet er helst frægur fyrir að hafa reynt að steypa bróður sínum af stóli til að setjast sjálfur í hásætið.

Frægasti hertogi af Clarence er hins vegar George Plantagenet. Hann var bróðir Játvarðar IV og Ríkharðs III. Kannski er hægt að segja að hann hafi verið týpískt miðjubarn því Játvarður var eldri og Ríkharður yngri en hann en báðir fengu konungstign sem George þráði en aldrei varð. Ríkharður er auðvitað þekktur í sögunni fyrir að vera kroppinbakurinn sem stal krúnunni eftir lát bróður síns og hann dó í bardaganum um Bosworth. Í leikrit Shakespeares er hann sagðu hafa boðið ríki sitt fyrir hest í þeirri von að sleppa úr klóm hersveita Hinriks Staffords, fyrrum samherja síns. Ríkharður fékk engan hestinn og Hinrik tók við ensku krúnunni. En áður en til alls þessa kom hafði George reynt að velta Játvarði bróður sínum úr sessi og verið dæmdur til dauða fyrir landráð. Sagt er að hann hafi fengið að velja sér dauðdaga og kosið að láta drekkja sér í Malmsey-víni en það var uppáhaldsvíntegundin hans. Sumir myndu reyndar segja að það væri ekki slæmur dauðdagi.

Þótt ekki hafi fleiri hertogar af Clarence en þessir þrír mætt svo sögulegum örlögum var prins Vilhjálmur Hinrik, einnig hertogi af Clarence og St. Andrew fremur harmrænn karakter. Hann var uppi á árunum 1765–1837 og þekktur fyrir kvennamál sín. Hann átti tíu börn með hjákonu sinni Dorotheu Jordan en var neyddur til að giftast Adelaide prinsessu af Saxe-Meiningen. Þau hjónin eignuðust tvær dætur en báðar dóu í vöggu. Engir löglegir erfingjar voru að titilinum í það sinn og sumir segja að Vilhjálmur Hinrik hafi verið enn einn þolandi þeirrar bölvunar er virðist hvíla á bresku konungsfjölskyldunni að prinsar og prinsessur fái aldrei að giftast þeim sem þau elska mest.

Prins Albert Viktor, var hann Kobbi kviðrista?

Bölvun eða óheppni?

Prins Albert Victor, hertogi af Clarence og Avondale lifði á árunum 1864–1892. Hann lést tuttugu og átta ára gamall úr inflúensu. Hvort bölvunin hafi þá látið á sér kræla enn og aftur er umdeilt en kenningar um að hann hafi verið hinn frægi Kobbi kviðrista eða Jack the Ripper hafa lengi verið viðraðar meðal samsæriskenningasmiða.

Um þessar mundir ber enginn titilinn hertoginn af Clarence og líklega munu hvorki Vilhjálmur né Katrín hafa nokkra löngun til að sæma son sinn vegtyllu sem svo vafasöm saga fylgir. Bretakonungar eru nokkuð frjálsir að því hvaða titla þeir velja börnum sínum og hugsanlega mun Vilhjálmur stofna nýtt hertogadæmi fyrir Lúðvík þegar hans tími kemur. Ekki það að þau hjónin séu sérlega hjátrúarfull, að sögn bresku pressunar, en flestir Bretar þekkja söguna og þess vegna þætti það líklega vafasamur heiður að bera þennan titil.

Hér á Íslandi tölum við gjarnan um ættarfylgjur. Þær eru aldrei jákvæðar. Fyrr á öldum voru þetta mórar og skottur, draugar sem ýmist höfðu verið vaktir upp og sendir til höfuðs fólki eða fátækar manneskjur sem sætt höfðu illri meðferð af hálfu forföður fjölskyldunnar og fylgdu afkomendum í hefndarskyni. Óheppni og ólán virðist einnig í sumum tilfellum leggjast í ættir og þá er talað um að bölvun hvíli á fjölskyldunni. Hversu trúaðir menn eru á slíkt er hins vegar persónubundið en margir Bretar munu alls ekki sýta það að hertogadæmið Clarence leggist af.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.