Bókasamvera – Borgarbókasafnið Grófinni

Borgarbókasafnið og Bókmenntaskólinn standa saman að nýju verkefni sem miðar að því að skapa aðgengilegan vettvang fyrir bókmenntir, samtal og geðrækt og styrkja hlutverk bókasafnsins sem lifandi samfélagsmiðstöð. Laugardaginn 7. nóvember kl. 11:15 til 12:45 hefst fyrsta bókasamveran af átta á Borgarbókasafninu Grófinni, en þær verða á dagskrá einu sinni í mánuði fram í júní á næsta ári.

Hver samvera hefur sjálfstætt þema sem tengist mannlegri reynslu og áskorunum daglegs lífs, svo sem sjálfsmynd, vináttu, breytingum, streitu, gleði og von. Þátttakendur fá tækifæri til að nálgast þessi viðfangsefni í gegnum sameiginlegan lestur, ígrundun, skrif og samtal.

Samverurnar mynda saman heildstætt verkefni, en hver þeirra stendur jafnframt sjálfstætt. Þátttakendur geta því tekið þátt í einni eða fleiri samverum eftir áhuga og þörfum, án þess að fyrri þátttaka eða undirbúningur sé nauðsynlegur.

Auglýsing

Lögð verður áhersla á að skapa hlýlegt og öruggt umhverfi þar sem fólk getur nálgast bókmenntir á eigin forsendum, deilt hugleiðingum sínum og kynnst ólíkum sjónarhornum. Þátttaka í persónulegum samtölum verður ávallt valfrjáls.

Bókasamverurnar leiða sérfræðingar Bókmenntaskólans, þær Esther Ágústsdóttir, bókmenntafræðingur og kennari og Elín Bergsdóttir, náms- og starfsráðgjafi, félagsfræðingur og ljóðskáld. Báðar hafa sótt námskeið og fyrirlestra hjá Bijal Shah sem hélt nýverið vinnustofur og fyrirlestur á Borgarbókasafninu um bókameðferð (e. bibliotherapy).

Verkefnið er styrkt af Bókasafnasjóði.

Nánar um verkefnið: https://borgarbokasafn.is/bokasamvera-baekur-sem-uppspretta-aukinna-lifsgaeda