Beinafundur og fullkomin leið til að losa sig við lík

Það verður sífellt vinsælla að skrifa um glæpi. Lárus Jón og Óskar Magnússon senda báðir frá sér sakamálasögur í ár. Lárus Jón skrifar um smiðinn, Smára, sem flækist óvart inn í gamalt mál en Óskar um lögfræðinginn Stefán Bjarnason verjanda Kjartans Leifssonar eiganda Miðhvals.

Úti hvíslar golan eftir Lárus Jón er fín glæpasaga. Smiðurinn Smári tekur að sér að reisa hús í afskekktum dal vestur á fjörðum. Faðir hans ólst þar upp og sá ávallt eftir að hafa skilið hundinn sinn eftir þegar fjölskyldan flutti burtu. Smári ákveður að reyna að komast að hver urðu örlög hundsins en hann hvarf ekki löngu eftir að fjölskyldan fór. Hann heimsækir meðal annars gamlan mann á tíræðisaldri sem bjó í dalnum og mundi eftir því þegar fjölskyldan flutti og hundurinn settist að í fjörunni að bíða húsbónda síns.

Málin flækjast svo enn frekar þegar Smári finnur bein, grafin í jörð og í ljós kemur að þau eru af konu og hundi. Smátt og smátt rennur upp fyrir honum að gamli maðurinn veit meira en hann var tilbúinn að gefa upp um örlög bæði konunnar og hundsins. Þetta er lipurlega og vel skrifuð bók og fléttan áhugaverð, sagan er drifin áfram af áhuga lesandans á að vita hver hin myrta var og hvers vegna hundurinn þurfti að gjalda með lífi sínu að vera á staðnum.

Í Hvalamorði standa lögregla og lögmenn frammi fyrir áður óþekktum vanda þegar hvalfriðunarsinninn Tom Waitrose hverfur óvænt. Síðast sást til hans rétt við Hvalstöðina í Hvalfirði og fljótlega vaknar grunur um að líkamsleifar hans hafi verið bræddar í hvalamjöl. Stefán Bjarnason hæstaréttarlögmaður er kallaður til enda Kjartan Leifsson forstjóri, skjólstæðingur hans, efstur á lista grunaðra. Það er hinn hámenntaði og greindi rannsóknarlögmaður Sæmundur Páll Jóhannsson sem fyrst leiðir rannsóknina en brátt tekur Arnheiður Kjartansdóttir við.

Það er ljóst að hér er mönnum mikill vandi á höndum. Er hægt að greina erfðaefni manns í fullum tanki af hvalaafurðum? Ef ekki hvernig á þá að sanna að þar hafi Tom Waitrose endað og hver myrti hann? Líklega er ekki hægt að finna fullkomnari leið til að losa sig við lík en einmitt að koma því fyrir í margra tonna bræðslutanki. Hvalamorðin eins og aðrar bækur Óskars Magnússonar er skrifuð í léttum dúr, eiginlega hæðnistóni. Það er ómögulegt að taka nokkra persónu hátíðlega enda ekki til þess ætlast. En flækjurnar og snúningarnir eru áhugaverðir og skemmtilegir og eins og í góðu lögfræðidrama leysist málið ekki fyrr en í réttarsalnum.

Auglýsing

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.