Stutt og skemmtilegt jólasöngverk með boðskap

Þórunn Guðmundsdóttir, söngkona, tónskáld og bókahöfundur, sendir frá sér nýtt verk sem hún segir vera jóla- og fjölskyldusöngleik og  verður frumsýnt nú 28. nóv. í Tjarnabíói og ber nafnið Mikið fyrir börn en um er að ræða söngverk með skemmtilegum söguþræði og ákveðnum boðskap, að sögn Þórunnar. „Það eru ráðgerðar fjórar sýningar á þessum fjórum helgum sem verða fram að jólum en miða má fá á tix.is. Heitið Mikið fyrir börn varð fyrir valinu af því í verkinu er mikið fyrir börn og einnig kemur fyrir ákveðin persóna sem er mikið fyrir börn, þannig að heitið er svolítið tvírætt,“ segir Þórunn.

Auglýsing

Þórunn er lærð söngkona en hún lærði hjá Elísabetu Erlingsdóttur í Tónlistarskólanum í Reykjavík. „Ég útskrifaðist þaðan með þrjú lokapróf, ég er svolítið eins og Georg Bjarnferðarson,“ segir hún og hlær. „Ég lauk blásarakennaraprófi, einleikaraprófi á flautu og burtfararprófi í söng frá Tónlistarskólanum í Reykjavík.“  Þórunn hélt svo til Bandaríkjanna þar sem hún stundaði framhaldsnám og lauk doktorsgráðu frá Indiana University i Bloomington, í söng og söngfræðum, þar sem hún skrifaði m.a. ritgerð um sönglög Jóns Leifs og Páls Ísólfssonar.

Þórunn Guðmundsdóttir, höfundur verksins.

Klassísk saga með nýju „tvisti“

Það er alltaf tilhlökkunarefni þegar nýtt íslenskt verk er frumsýnt en verkið er ætlað börnum frá fjögurra ára aldri og upp úr.  Þórunn, sem er kona margra hatta, var á æfingu þar sem hún þurfti að hlaupa í skarðið fyrir einn söngvarann í jóla-fjölskylduleiknum nýja  þegar blaðamaður náði tali af henni. „Það má segja að fyrstu drög að þessum söngleik, Mikið fyrir börn séu næstum því 20 ára gömul en um það leyti var ég virk í áhugaleikfélaginu Hugleik.  Við vorum með jóladagskrá og ég samdi þá nokkur lög sem komu síðan út á diski. Ég áttaði mig svo á því að mörg þessara laga voru í rauninni mjög leikræn og að það var hægt að raða þeim saman í svolítið skemmtilegan jólaleikþátt. Ég bætti síðan við nokkrum jólalögum þegar við fórum að ráðgera þetta jólaverk.

Aðalpersónurnar í verkinu eru Grýla og tveir synir hennar, annars vegar Stekkjastaur, sem er orðinn svo leiður á því að þurfa alltaf að fara fyrstur, hann langar til að vera heima og leika við bræður sína og Jólaköttinn. Svo er það Leppur sem er mjög sár því hann hefur aldrei fengið að fara í bæinn að gefa börnum í skóinn. Leppur er hins vegar ekki jólasveinn og það er ástæðan fyrir því að hann fær aldrei að fara.

Til að gera langa sögu stutta, þá ákveður Leppur að fara og elta Stekkjastaur þegar hann þarf að fara til byggða til að gefa börnunum í skóinn. Þegar þeir hittast þá skipta þeir um hlutverk. Leppur er þá búinn að læra allt sem hægt er að læra um það að vera jólasveinn, mætir í bæinn og fer að gefa í skóinn.

Fyrsta manneskjan sem hann hittir er Tóta litla. Hún er algjör frekja og svo mikil að Leppur missir stjórn á hlutunum og áttar sig á því að hann kann ekki nógu vel að vera jólasveinn. Sem betur fer uppgötvar Grýla að Stekkjastaur er enn í hellinum og hendir honum öfugum út og hann heldur til byggða og bjargar bróður sínum.“

Stekkjastaur og Leppi.

Boðskapur sem á alltaf við

Þórunn segir að það sé svolítil ógn í þessu verki eins og svo mörgum ævintýrum af því að það endar með því að Grýla nær yfirhöndinni; það má nefnilega ekki vera með of mikla frekju.

„Ég myndi því segja að það geti orkað tvímælis að fara með of ung börn  á sýninguna ef þau skilja þetta. Tóta litla endar nefnilega í pokanum hennar Grýlu … og það stefnir allt í það að hún verði jólasteikin í hellinum, það er svona aðeins gefið í skyn. En ævintýrin eru nú einu sinni þannig að þau mega vera hæfilega hræðileg.

Þórunn segir að sýningin sé líka fyrir fullorðna og sé bráðskemmtileg. „Við erum búin að hlæja rosalega mikið og skemmta okkur á æfingum þannig að ég held að engum ætti að leiðast. Svo er sýningin heldur ekki of löng – hún er innan við 50 mínútur sem er góð tímalengd fyrir börn, og fullorðna líka. Þannig að það er upplagt að stinga sér inn úr jólaönnum og fara inn í íslenska jólaævintýrið um jólaverurnar.“

Grýla.

Valinn maður í hverju rúmi og ýmsar leikhúsbrellur

„Synir Grýlu eru annars vegar sungnir af Gunnlaugi Bjarnasyni sem er Stekkjastaur og Eggert Reginn Kjartansson syngur Lepp. Grýlu syngur Margrét Björk Daðadóttir og Vera Hjördís Matsdóttir syngur Tótu litlu en Herdís Kristjánsdóttir Linnet er í hlutverki Jólakattarins, sem leikur með á píanó. Þórunn Lárusdóttir leikstýrir og hefur náð ólíklegustu hreyfingum og hlutum út úr fólki og í sýningunni eru alls konar sprell og skemmtilegheit. Við notum líka leikhúsbrellur því einhverjir vaxa þarna í sýningunni.“

„Ég hef alltaf haft svakalega gaman af því að semja“

Þórunn hefur verið iðin við að semja tónlist og er einnig sviðshöfundur. „Ég hef verið nokkuð iðin en ég byrjaði tiltölulega seint, það var ekki fyrr en um fertugt sem ég byrjaði að semja tónlist. Ég hélt alltaf að þetta væri fyrir fáa útvalda – að fólk hefði þessa ákveðnu sköpunargáfu en þegar ég fór í Hugleik, þá voru allir að skrifa og voru ekkert að spá í hvort þeir gætu skrifað eða ekki, heldur bara var það þessi hugsun: þetta er skemmtilegt – ég ætla að prófa þetta. Ég hef frá upphafi haft svakalega gaman af því að semja. Ég hef í raun samið bæði leiktexta og tónlist.

Fleipur, nýja bókin hennar Þórunnar.

Svo er að koma út bók eftir mig, sem er alveg nýtt fyrir mér núna. Það er bók með smásögum eftir mig en Bjartur gefur þær út. Bókin heitir Fleipur en þetta er í fyrsta skipti sem ég skrifa prósa,“ segir þessi fjölhæfa og sískapandi kona. Sögurnar eru þrettán talsins og gerast á ýmsum tímum. Þær eru mislangar, sumar gráglettnar en aðrar alvarlegar.

Þórunn hefur kennt og sungið og svo tók við tónlistarsköpun. „Tónlistarferillinn hefur þróast á svolítið skemmtilegan hátt.  Allt sem ég hef áhuga á sem er að semja tónlist, texta og taka þátt í leikhúsi kemur saman í óperum og söngleikjum. Ég hef reyndar gerst svo djörf í sumum tilfellum að leikstýra sjálf en ég er nú sem betur fer svo heppin með leikstjóra núna, hana Þórunni Lárusdóttur að ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því,“ segir hún og hlær. „En ég fæ stundum að sprella þegar einhver er veikur á æfingum og þá get ég stokkið inn í hlutverk.“ Það búa ekki allir svo vel að geta kallað tónskáldið upp á svið til að stökkva inn í hlutverk við þannig aðstæður, en Þórunn getur allt.

Tóta.

Má flytja meira óperur og klassíska tónlist fyrir börn

Aðspurð segir hún að það megi algjörlega huga meira að því að flytja tónlist og óperur fyrir börn. „Mikið fyrir börn er söngleikur, sunginn af skóluðum röddum, það er stundum eins og fólk veigri sér við að kynna óperur og klassíska tónlist, og slíkt efni, fyrir börnum þannig að ég myndi segja að þessi söngleikur sé millivegur. Meirihluti verksins er sunginn og ég held að það sé mjög hollt og gott fyrir börnin að upplifa það. Verkið er stutt og glettið en samt með ákveðinn boðskap sem er að það má ekki ganga fram af fólki í óþekkt eins og Tóta litla gerir. Svo eru þarna orðaleikir og rím og það er nokkuð sem höfðar til barna og má alveg halda að þeim. Hópurinn er mjög flottur og skemmtilegur og við hlökkum mikið til að sýna þetta, bæði börnum og fullorðnum.“

Ragnheiður Linnet  blaðamaður skrifar fyrir Lifðu núna