Ljúf tónlist og söngur í Hannesarholti

Hvassófjölskyldan, Hvassaleiti 75, leiðir Syngjum saman í Hannesarholti laugardaginn 27.janúar kl.14. Svana Víkings verður á píanóinu. Fjölskyldan ólst upp við ríka sönghefð á heimili sínu og þau elstu bjuggu við þann lúxus að hverja nýjársnótt fylltist húsið af söngelskum nágrönnum og allir tóku undir til að fagna nýja árinu. Yngri kynslóðir hafa verið munstraðar inní fjölskylduhefðina og samsöngurinn í hávegum hafður í samveru fjölskyldunnar, sem hefur margoft áður leitt söngstundir í Hannesarholti.
Syngjum saman í Hannesarholti veturinn 2023-4 er tileinkað Marinellu Ragnheiði Haraldsdóttur, sem var fædd 1933 og hefði því orðið níræð 14.september 2023. Hannesarholt er til vegna hennar og hún mætti á alla Syngjum saman viðburði með dóttur sinni á meðan stætt var. Um leið og við minnumst hennar og heiðrum viljum við taka hana okkur til fyrirmyndar. Söngurinn fylgdi henni ævina út, en hún lést 11.júlí síðastliðinn. Frítt er inná Syngjum saman í vetur henni til heiðurs, sem er haldið reglulega á laugardögum kl.14. Textar á tjaldi og allir syngja með.
Samsöngur er ekki það eina sem boðið er upp á í Hannesarholti um helgina. Tvennir tónleikar verða einnig í boði.
RÓMANTÍSKIR TÓNAR FRÁ EVRÓPU 
Tónlistarmennirnir Konrad Artur Cygal, tenór frá Póllandi, og Stefano Chiurchiù, píanóleikari frá Ítalíu, sækja Ísland heim og bjóða til styrktartónleika í Hannesarholti laugardaginn 27.janúar kl.16. Á efnisskránni eru verk eftir Heinrich von Herzogenberg, Robert Schumann, Richard Strauss, Johannes Brahms og Franz Schubert.
Tónleikarnir eru hluti af alþjóðlegri námsferð þeirra félaga og eru styrktir af FM+ Baranski GmbH and Nuki og afrakstur miðasölu er til styrktar menningarstarfsemi í Hannesarholti. Miðar á tix.is
ROMAIN COLLIN & GDRN
Píanistinn Romain Collin, sérlegur vinur Hannesarholts, hefur snúið aftur í listamannadvöl í Hannesarhorni og stendur fyrir tónleikafernu á næstu vikum, Romain Collin & gestir 2024, þar sem hann býður til samstarfs framúrskarandi listamönnum. Romain Collin, sem var tilnefndur til Grammy verðlauna 2020, hefur verið reglulegur gestur á Íslandi síðustu ár, og þetta er þriðja tónleikaröðin sem hann stendur fyrir í Hannesarholti.
Ritstjórn janúar 26, 2024 10:00