Árlegur endurreikningur vegna greiðslna frá TR vegna ársins 2025 liggur nú fyrir á Mínum síðum. Birt er uppgjör fyrir rúmlega 66 þúsund einstaklinga í dag.
- Um 41%, eða hátt í 30 þúsund einstaklingar eiga inneign og fá hana greidda 1. júní næstkomandi. Miðgildi inneigna er um 58.000 krónur.
- Um 47%, eða rúmlega 31 þúsund einstaklingar, fengu ofgreitt árið 2025 og þurfa að endurgreiða í samræmi við það, frá og með 1. júní næstkomandi. Miðgildi endurgreiðslna er um 100.500 krónur.
Mun færri þurfa að endurgreiða en í fyrra
Í uppgjöri fyrir árið 2024 var hlutfall þeirra sem fengu ofgreitt 66% en er nú 47% fyrir árið 2025 sem er nokkur lækkun á milli ára. Ástæður ofgreiðslna árið 2025 er nú sem fyrr hægt að rekja til fjármagnstekna, en þær voru mun hærri heldur en viðskiptavinir höfðu áætlað. Um 77% lífeyrisþega eru með innan við 200.000 króna frávik í niðurstöðu sinni.
Endurkröfur lækka á milli ára
Miðgildi endurkrafna lækkar nokkuð á milli ára, en það var 114.000 krónur í fyrra en er nú um 100.500 krónur. Ofgreiðslur sem leiða til endurgreiðslna myndast vegna mismunar á tekjuáætlun og rauntekjum sem koma fram í skattframtali fyrir árið 2025. Viðskiptavinir geta andmælt niðurstöðum uppgjörs til og með 27. maí 2026. Það er gert á Mínum síðum TR.
Úrræði vegna niðurstöðu uppgjörs og innheimtu krafna
Almenna reglan er að kröfur beri að endurgreiða á 12 mánuðum en sérstaklega er bent á að ef það reynist íþyngjandi er ávallt hægt að hafa samband við TR og semja um greiðslur til lengri tíma.
Hvers vegna þarf að leiðrétta greiðslur til viðskiptavina TR?
Greiðslur frá TR byggja á tekjuáætlunum viðskiptavina, þar sem áætlað er hvaða tekjur viðkomandi hefur á árinu. Endurreikningurinn sem TR birtir í dag byggir á tekjuupplýsingum úr staðfestum skattframtölum fyrir árið 2025. Þessi samanburður leiðir í ljós hvort viðkomandi hafi fengið greitt í samræmi við réttindi sín, eða hvort frávik valdi því að um van – eða ofgreiðslu hafi verið að ræða á síðastliðnu ári. Segja má að eðlilegt sé að frávik á greiðslum komi fram við endurreikning þar sem erfitt getur reynst að áætla nákvæmlega tekjur fram í tímann.
Þrátt fyrir að viðskiptavinir beri ábyrgð á að tekjuáætlun sé sem réttust þá er starfsfólk TR stöðugt að leita leiða til þess að draga úr því misræmi sem getur orðið á milli tekjuáætlunar og rauntekna. Þannig er sífellt unnið að betra upplýsingaflæði milli viðskiptavina og TR ásamt lífeyrissjóðum og við skattyfirvöld. TR hefur að auki haldið áfram að kynna sérstaklega greiðslufyrirkomulag þar sem viðkomandi fær eina greiðslu á ári, sem hentar vel þeim viðskiptavinum sem eru að fá tiltölulega lágar greiðslur mánaðarlega.







