Létta leiðin til að bæta heilsuna

Flestir geta líklega gert meira og aðeins betur í að rækta heilsu sína og bæta lífshætti. Það reynist hins vegar mörgum ákaflega erfitt að breyta venjum sínum. Það gæti verið vegna þess að fólk reynir að breyta of miklu á of skömmum tíma. Hér eru nokkur ráð sem hafa gríðarleg áhrif til lengri tíma en skipta litlu í hversdagslífinu.

Settu þetta í innkaupakörfuna

Ótal matartegundir eru hollar og góðar en þegar breyta á mataræði sakna margir ákveðinnar áferðar eða bragðs sem þeir voru orðnir vanir. Það má slá á söknuðinn með því að plata sjálfan sig ofurlítið. Settu því balsamik edik í körfuna og notaðu það til að gera dressinguna á salatið ofurlítið sætari. Hnetur eru góð uppspretta prótína en þær eru einnig stökkar og frekar sætar á bragðið. Þær geta því slegið vel á löngun í snakk og sætindi. Grísk jógúrt er þykk og bragðgóð en fitulítil. Hún er því einstaklega góð uppistaða í sósur og gefur þeim rjómakennt bragð. Hana má einnig nota út á ávaxtasalöt og um það bil ein teskeið af hunangi út í eða svolítil vanilla og hún er ekkert síðri en ís eða rjómi.

Auglýsing

Góðir skór eru hverrar krónu virði

Æfingaskór eru dýrir og það er freistandi að spara sérstaklega vegna þess að ekki er sjáanlegur munur á dýrum og ódýrum skóm. Munurinn er engu að síður til staðar. Í sólum dýrari skónna eru höggdeyfar eða loftpúðar. Þeir eru einnig sérhannaðir til að styrkja ökklann og halda vel utan um fæturnar. Það þarf sömuleiðis að gefa sér góðan tíma til að máta og ganga á skónum því ekkert er verra en að hefja líkamsræktaræfingu í skóm sem meiða mann. Best er að fara seint í eftirmiðdaginn eða um kvöld til að kaupa skó. Fæturnir bólgna yfir daginn og þess vegna borgar sig að kaupa skó þegar þeir eru stærstir. Það er líka góð regla að ganga úr skugga um að nægilegt rými sé fremst í skónum til að þú getir hreyft tærnar.

Veldu réttu tónlistina

Tónlist er örvandi og getur hjálpað mönnum óumræðanlega mikið að halda út  og klára erfiða æfingu. Það er stórsniðugt að velja lög sem koma þér alltaf í stuð og setja inn á ipod eða aðra þægilega tónlistarveitu og halda svo af stað. Tíminn er fljótari að líða og þú ert líklegri til að afreka meira og ná betri árangri með réttu tónlistinni.

Hvenær er best að vigta?

Þótt hreyfing og hollt mataræði sé góð leið til að tryggja betri heilsu eru flestir einnig að vonast til að losna við nokkur aukakíló. Eftir að hafa fylgt nýjum og betri venjum er gott að vigta sig til að ganga úr skugga um árangurinn. Það borgar sig ekki að vigta sig oftar en einu sinni í viku og morgnarnir eru besti tíminn. Ef stigið er á vigtina um leið og menn koma fram fæst raunsönn tala um líkamsþyngdina. En ef menn hafa ekki tök á að vigta sig þá er bara að velja sinn tíma og halda sig við hann því þá mælir vigtin breytingarnar.

Veldu rétt á diskinn

Góð og einföld leið til að mæla skammtastærðir er að velja kjöt eða fisk á á 1/3 af disknum og fylla síðan upp með grænmeti. Kolvetni, þ.e. ávextir, pasta, hrísgrjón eða kartöflur mega heldur ekki taka meira pláss en sem nemur 1/3.

Mældu skrefin

Það er nauðsynlegt að fara út á hverjum degi. Líkaminn þarfnast hreyfingar, útilofts og birtunnar. Fáðu þér heilsuúr, skrefamæli eða app í símann sem mælir skrefin þín og farðu svo út í hádeginu og gakktu hring í nágrenni vinnustaðarins. Þá nærðu að njóta dagsbirtu árið um kring og getur notað tímann til að fylla upp í göngukvóta dagsins sem þú stillir inn í tækið.