Hátíðarpastasalat er tilvalið að gera fyrir helgardögurðinn. Þetta salat er einfalt í undirbúningi og sérlega bragðgott.
hálfur pakki tagliatelle
3-4 kjúklingabringur, bein- og skinnlausar
4 msk. ólífuolía
1 rauðlaukur
4 hvítlauksrif, smátt skorin eða pressuð
2 stórir kúrbítar
2 rauðar paprikur
1 dós saxaðir tómatar (diced)
hálf dós tómatsósa
2 msk. oreganó
2 msk. Italian seasoning eða mixed herbs
1 grænmetisteningur
1 msk. dijon sinnep
ögn af soja-sósu
pipar og salt
parmesan ostur, sneiddur, t.d. med ostaskera, eða ,,skrælara“
Setjið ólífuolíu í stóran pott, grófskerið laukinn, helst í strimla. Látið hann krauma í olíunni ásamt hvítlauknum við frekar vægan hita í u.þ.b. 5 mínútur. Laukurinn má alls ekki brúnast. Skerið kúrbítinn og paprikuna í strimla, bætið þeim út í pottinn og látið malla við meðalhita í u.þ.b. 5 mínútur. Hrærið í af og til. Setjið tómatana út í ásamt tómatsósunni. Kryddið og bætið grænmetisteningnum, sinnepinu og sojasóusunni saman við. Látið malla í u.þ.b. 15 mínútur. Sjóðið tagliatelle eftir leiðbeiningum á umbúðum. Skerið kjúklingabringurnar i mjóar ræmur á meðan pastað sýður, kryddið með pipar og salti og gegnsteikið kjötið. Blandið því síðan saman við grænmetið og setjið í skál. Sneiðið parmesan ostinn yfir, má líka rífa hann, og berið fram með tagliatelle og fersku salati.