Kókosbolludraumur -alger bomba

Þetta er einn allra einfaldasti eftirréttur sem hægt er að hugsa sér og sælgætisgrísir á öllum aldri elska hana.  Uppskriftina að þessari bombu fundum við á vefnum Gott í matinn og höfundur hennar er Gígja S. Guðjónsdóttir. Uppskriftin dugar fyrir sex til átta og það er sáraeinfalt að stækka hana.

Innihald:
1 tilbúinn marensbotn
4 kókosbollur
½ l rjómi
150 g lakkrískurl
3 stk. Mars súkkulaði
Bláber og jarðarber (eða aðrir ávextir)

Aðferð:

Myljið marensinn og setjið í botn á formi ásamt kókosbollunum.

Setjið næst þeyttan rjóma og lakkrískurl. Þjappið rjómanum vel ofan í formið.

Toppið með smátt skornu Marsi og ávöxtum.

Geymist í kæli þar til rétturinn er borinn fram.

 

Ritstjórn mars 22, 2019 08:54