Nauðsyn þess að sofa vel

Svefnleysi getur haft mikil áhrif á líkamlega heilsu okkar, tilfinningalíf og andlega líðan. Að sofa lítið getur haft áhrif á matarlyst, þyngdarstjórnun, einbeitingu og þeir sem sofa of lítið verða gjarnan stressaðir. Svefnleysið getur líka haft áhrif á hormónabúskap líkamans. Það skiptir því gríðarlega miklu máli að ná að sofa vel og hæfilega lengi. Hér eru nokkur ráð til að fá góðan nætursvefn.

  1. Komið ykkur upp ákveðinni rútínu. Reynið að kyrra hugann áður en þið farið upp í rúm með því að lesa bók, hugleiða eða fara í gott bað. Það hjálpar líka mikið til að fara alltaf að sofa á sama tíma.
  2. Slökkvið á öllum raftækjum sem gefa frá sér bláa birtu að minnsta kosti klukkutíma áður en þið farið upp í rúm. Bláa birtan hefur áhrif á framleiðslu melatóníns í líkamanum. En það á þátt í að stjórna blóðþrýstingi og því hvenær við verðum syfjuð. Forðist að hafa nokkurt það tæki í svefnherberginu sem gefur frá sér bláa birtu.
  3. Reynið eftir mætti að draga úr streitu í lífi ykkar. Ef þið ráðið ekki við streituna, leitið þá læknis. Of mikil streita getur leitt til þess að fólk á erfitt með að festa svefn og loksins þegar fólk sofnar vaknar það upp á nóttunni við slæma drauma.
  4. Of mikil kaffidrykkja getur haft mjög slæm áhrif á svefninn og haft þau áhrif að fólk vaknar upp mörgum sinnum á nóttu. Það truflar djúpsvefninn vegna örvandi áhrifa þess á miðtaugakerfið. Áfengi hefur líka slæm áhrif á svefn. Vissulega hefur það slakandi áhrif og fólk fellur í djúpan svefn fyrri part nætur, en svo verður svefninn sundurslitinn seinni part næturinnar.
  5. Ákveðin næringarefni og fæða geta haft góð áhrif á svefn fólks. Magnesíum er til að mynda talið hafa náttúrleg róandi áhrif, en skortur á því getur valdið svefnleysi. Borðið því vel af grænu grænmeti og baunum, en slík fæða er rík af magnesíum. Kalíum er annað næringarefni sem getur haft áhrif á svefnheilsu okkar. Skortur á því getur valdið kvíða, pirringi, reiði og þunglyndi; skortur á þessu næringarefni getur því auðveldlega valdið svefnleysi. Fæðutegundir sem eru ríkar af kalíum eru sætar kartöflur, spínat og lárpera.
Ritstjórn maí 28, 2019 05:56