Örlagasaga Jakobs

Íslenskar sakamálasögur eru fjölbreyttar, skemmtilegar og spennandi. Þeir höfundar sem hafa lagt fyrir sig þessa bókmenntagrein hér á landi eru undantekningalaust hæfileikaríkir og kunna vel að skapa bæði persónur og andrúmsloft. Satu Ramö er þar engin undantekning. Þriðja bókin í bókaflokknum um Hildi og Jakob, lögreglumenn á Ísafirði, heitir einfaldlega Jakob og er áhugaverð og flott. Þegar lesandinn lokar bók með þá tilfinningu í maganum að geta varla beðið eftir framhaldinu veit það sannarlega á gott.

Auglýsing

Satu er finnsk en hefur verið búsett hér á landi í tuttugu ár. Hún kom hingað sem skiptinemi til að stunda háskólanám í þjóðfélagshagfræði en skipti um skoðun og fór að læra íslenskar bókmenntir og þjóðháttafræði í staðinn. Hún er búsett á Ísafirði ásamt manni sínum og tveimur börnum.

Flókið samspil margra þátta

Hildur Rúnarsdóttir er búin að finna Björku systur sína. Þær hafa náð vel saman en æska þeirra systra eftir að þær hurfu var ekki góð.  Tinna, móðursystir Hildar, ól hana upp en Hulda, hin systir móður þeirra þær Rósu og Björk. Hulda glímdi við andlega veikindi og þær systur liðu fyrir það. Þegar sagan um Jakob hefst hafa þyngslin lagst yfir og hún veit að eitthvað slæmt er í vændum. Illa farið lík ungs manns finnst skömmu síðar í sjókví fyrir utan Ísafjörð og smátt og smátt vindur málið upp á sig. Það virðist tengjast dýraverndunarsamtökum og ólöglegu blóðmerahaldi. Á sama tíma berst Jakob við að fá forsjá sonar síns og þarf að mæta fyrir rétt í Finnlandi.

Þótt Satu hafi ekki skrifað skáldsögur áður hafði hún gefið út bæði prjónabækur og handbækur um Ísland. Í Covid sótti að henni einhver tómleikatilfinning og hún hóf að skrifa sína fyrstu skáldsögu. Í bígerð er að skrifa sex bækur í seríunni um Hildi lögreglukonu, systur hennar, Jakob og Betu fyrrverandi lögreglustjóra á Ísafirði. Íslenskir lesendur hafa nú fengið að njóta þriggja. Bækurnar hafa hlotið metsölu í Finnlandi og nokkrar þeirra hafa verið þýddar á ensku en að auki hefur útgáfurétturinn verið seldur til tólf annarra landa. Það er ekkert undarlegt að lesendur séu spenntir því Satu kann vel þá list að búa til áhugaverða fléttu, leiða lesandann áfram frá einni vísbendingu til annarrar og skapa spennu.

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.