Ný viðburðaröð á Borgarbókasafninu leiðir saman íslenskumælandi fólk og fólk með íslensku sem annað mál.
Í apríl hefur göngu sína á Borgarbókasafninu ný og spennandi viðburðaröð, sem kallast Samvera (Common Ground) þar sem íslenskumælandi fólki og fólk sem er að læra íslensku gefst kostur að hittast yfir kaffibolla, eiga notalega stund saman og æfa íslensku í öruggu og vinalegu umhverfi.
Fyrstu viðburðirnir undir merkjum Samveru, Samvera í náttúrunni, fara fram á Borgarbókasafninu Gerðubergi í Breiðholti núna í apríl og maí en þá verður sérstök áhersla lögð á orðaforða tengdan náttúrunni og farið í létta göngutúra um nágrennið, ef veður leyfir.
Seinna í haust munum við koma saman til að lesa og ræða íslenskar fréttir, semja ljóð og spila borðspil. Markmiðið er að hjálpa fólki sem er að læra íslensku að tengjast betur íslensku samfélagi og náttúru og þróa með sér skapandi tengsl við íslenska tungu.
Fanny Sissoko, verkefnastjóri inngildingar og fræðslu á Borgarbókasafninu, hefur umsjón með Samveru, en hún hefur í gegnum störf sín unnið ötullega að því að skapa inngildandi samfélagsrými á safninu, rými þar sem öll eru velkomin, öll tilheyra og öll geta tekið þátt – óháð tungumáli, færni eða bakgrunni. Dagskrá Samveru er sett saman í þeim anda.
Þess má geta að viðburðir undir merkjum Samveru eru allir ókeypis og skráning er óþörf.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Borgarbókasafnsins:







