Við getum haft áhrif á drauma okkar

Okkur dreymir öll en munum ekki endilega hvað okkur dreymir. Við getum þjálfað okkur til að muna og einnig hafa áhrif á draumana og breytt þeim.

Vísindamenn eru ekki allir sammála um af hverju fólk dreymir og ekki er mjög langt síðan farið var að rannsaka drauma á vísindalegan hátt. Samkvæmt vísindum er ekkert yfirnáttúrulegt við drauma. Þeir eru starfsemi hugans í svefni, á sama hátt og hugsanir okkar eru starfsemi hugans í vöku, segir á Vísindavefnum. Þar segir einnig að ein hugmynd sé að draumar séu hreinlega afleiðing af þeirri miklu heilavirkni sem á sér stað í svefni. Í REM-svefni sé heilavirkni mikil og draumar sömuleiðis algengir. Ein kenningin sé að í REM-svefni styrkist nýjar minningar og tengist við eldri. Þess vegna skýrist algengi drauma á þessu svefnstigi ef til vill einfaldlega af því að verið sé að „taka til“ í heilanum. Draumar verði því til vegna starfsemi heilans í svefni.

Stigið sem kallast lucid-dreaming, eða skírdreymi á íslensku, er þegar við erum meðvituð um að okkur sé að dreyma, ekki ósvipað því að vera á milli svefns og vöku. Draumar á skírdreymisstiginu hafa áhrif á líkamann og ljúfur draumur gæti því dregið úr kvíða og streitu. Á þessu stigi svefnsins gætum við einnig fengið ýmsar hugljómanir.

Fékk ítrekað martraðir

Fólk sem fær oft martraðir ætti að geta þjálfað sig til að stöðva drauminn og vakna strax. Eða breyta martröðinni meðvitað eins og viðmælandi okkar, kona á sextugsaldri, gerði. Hún fékk ítrekað martraðir ef hún var þreytt og undir álagi og þær snerust iðulega um hremmingar á meðan hún klifraði óvarin utan á alls kyns háhýsum við óöruggar aðstæður. Í vöku var hún þó ekki sérlega lofthrædd.

„Þegar ég gekk í gegnum erfitt tímabil í lífinu, skilnað og sársaukafullan missi kvað sérlega rammt að þessum ósköpum og ég var farin að kvíða því að fara að sofa. Draumarnir voru hræðilega skýrir þótt ég vissi hálfpartinn af því að mig var að dreyma. Ég byrjaði að klifra upp stillasa eða jafnvel upp eftir veggjum með því að halda mér í syllur og ójöfnur, og ég er alls ekki íþróttamanneskja og dytti ekki í hug að taka upp á svona löguðu í vöku. Mig dreymdi aldrei nákvæmlega að einhver væri að elta mig en það hlýtur samt að hafa verið svo, því ég varð að gera þetta. Fjölbreytnin í þessum draumum eða martröðum var óendanleg og hræðslan var þannig að ég hrökk stundum upp með andfælum, en gat samt ekki losað mig út úr draumnum og þurfti að halda áfram að sofa og glíma við þessa erfiðu áskorun.“

„Það sem þú þarft að gera er að fara inn í drauminn og eins nákvæmlega og þú getur í gegnum dæmigert ferli, þangað til þú kemur að þeim hluta þar sem þú ert hræddust.“

Einskær tilviljun olli því að konunni tókst að rjúfa vítahringinn. Hún var stödd í Evrópu í vinnuferð og sat dauðþreytt í lest snemma kvölds. Með henni í klefa var eldri kona frá Bandaríkjunum, sálfræðingur að mennt og einstaklega skrafhreifin. Eftir að sálfræðingurinn stakk upp á því að þær legðu sig og reyndu að sofna í smástund, minntist okkar kona á martraðirnar sem hún fengi oft þegar hún væri þreytt, eins og þarna. Sálfræðingurinn spurði áhugasöm hvort hún vildi losna við þær og fékk áhugasamt já við því. Eftir að hafa beðið um og fengið nákvæma lýsingu á draumunum sagði hún: „Það sem þú þarft að gera er að fara inn í drauminn og eins nákvæmlega og þú getur í gegnum dæmigert ferli, þangað til þú kemur að þeim hluta þar sem þú ert hræddust. Þá skaltu fara aftur út úr draumnum og hugsa þér hvernig þú getur leyst þetta af hendi þannig að þú sért ekkert hrædd og komir út úr draumnum sem sigurvegari. Lausnin þarf alls ekki að vera sönn, en hún þarf að vera sennileg. Þú verður sjálf að finna út úr því hvað hentar þér best, til dæmis að þú hefðir fengið sérstaka þjálfun í klifri og værir meistari í því, værir með hanska sem væru alveg öruggir við þessar aðstæður, eða að þegar þú horfðir niður þá áttaðir þú þig á því að þú værir ekki svona hátt uppi eins og þú hélst, heldur bara tæpan metra frá jörðu. Farðu aftur og aftur í gegnum þessa atburðarás eftir að þú ert búin að snúa henni þér í hag, svo þú gleymir henni örugglega ekki. Þá mun þessi draumur vera auðveldur þegar hann sækir næst á þig og smátt og smátt, líklega fljótlega, hættir þig að dreyma þetta.“

Viðmælandi okkar fann að það hentaði henni best að telja sjálfri sér trú um að hún væri haldin ofurkrafti sem gerði klifrið utan á stórhýsum að skemmtun í stað ógnar. Hún mátaði sig við allar mögulegar aðstæður í draumunum og þegar hún komst á hótelið seint og um síðir og lagðist til svefns fór hún vel yfir söguna enn einu sinni. Undir morgun fór draumurinn af stað. Hún vissi hálft í hvoru að hana var að dreyma en með miklu stolti leysti hún hverja klifurþrautina af annarri. „Eftir einhvern tíma hætti þessi draumur að hrjá mig. Vitneskjan um að ég þekki aðferð til að losa mig úr þessum aðstæðum hefur styrkt mig og gert líf mitt auðveldara á álagstímum,“ segir hún.

„Nei, ekki þessi draumur aftur!“

Kona sem ólst upp á Akranesi þjáðist af sjóveiki og kveið því að þurfa stundum að taka Akraborgina. „Þessi kvíði elti mig inn í drauma mína og iðulega dreymdi mig að ég væri um borð í ferjunni í miklum sjógangi með tilheyrandi veltingi og vanlíðan. Eina nóttina sem oftar dreymdi mig þennan draum nema þá virtist ég gera mér grein fyrir að mig væri að dreyma því ég sagði upphátt í draumnum: „Æ, nei, ekki þessi draumur aftur.“ Við þetta kyrrðist sjórinn og veltingurinn hætti. Mig dreymdi þennan draum aldrei aftur. Ekki hefði mig grunað áður en þetta gerðist að hægt væri að hafa áhrif á drauma sína.“

Frábær uppgötvun

„Skömmu eftir útför föður míns dreymdi mig hann. Við töluðum ekki mikið saman en það var svo mikill hamingjuhljómur í rödd hans að ég vaknaði mun glaðari og sáttari. Mig hefur ekki dreymt hann síðan en draumurinn skildi eftir góða langvarandi tilfinningu. Þegar ástkær systir mín lést, tuttugu árum seinna, vonaði ég að mig dreymdi hana fljótlega, eins og pabba, en það gerðist ekki. Rúmu ári eftir dauða hennar ákvað ég með sjálfri mér þegar ég lagðist í rúmið um kvöldið að það væri löngu tímabært að mig dreymdi hana. Um nóttina fannst mér einhver segja að mig dreymdi hana oft, ég bara myndi ekki draumana. Ég vildi muna og nokkrum kvöldum seinna sofnaði ég með þann ásetning í huga og í þeim draumi sá ég systur mína úr fjarlægð. Næsta kvöld hugsaði ég sterkt um að mig langaði að heyra rödd hennar. Þá um nóttina gerðist það nema röddin barst frá ókunnugri konu. Meiri stælarnir í undirmeðvitundinni, hugsaði ég fúl. Ég gafst upp í bili en fannst þó magnað að geta stjórnað draumum mínum þótt árangurinn væri ekki betri en þetta. Næst þegar ég geri þessa tilraun ætla ég að forma hugsanir mínar betur, hafa óskir mínar skýrari. Nú veit ég að ég get haft áhrif á það hvað mig dreymir og mér finnst það frábær uppgötvun.“

Fyrst að muna – svo að stjórna

Til að breyta draumum sínum þarf að muna þá og ráð til þess er að endurtaka nokkrum sinnum hvert kvöld fyrir svefninn: Ég ætla að muna það sem mig dreymir.

Þegar þú finnur að þetta ber árangur geturðu farið að stjórnast í draumunum. Ef þú þarft að leysa vandamál skaltu hugsa um það fyrir svefninn og láta það vera þína síðustu hugsun áður en þú fellur í svefn. Ef vandamálið tengist manneskju skaltu hugsa um hana. Gott er líka að æfa í huganum sérstaka senu yfir daginn til að hún birtist í draumum þínum, eins og samtal eða aðstæður. Á meðan þú sefur reynir undirmeðvitundin nefnilega að leysa málið.

Ef þú ert til dæmis myndlistarmaður sem hefur misst andagiftina sjáðu fyrir þér auðan striga áður en þú festir svefn. Rithöfundur með ritstíflu gæti fundið nýjan flöt á söguþræði eða komist áfram með bókina með því að láta sig dreyma um það … og svo framvegis. Það eru engar takmarkanir nema eigið ímyndunarafl.

Haltu endilega draumadagbók. Áður en þú opnar augun skaltu rifja drauminn vel upp til að þú gleymir engu og skrifaðu drauminn niður. Smám saman finnurðu tengingu á milli draumanna og getur farið að lesa í merkinguna.

Guðríður Haraldsdóttir, blaðamaður Lifðu núna, skrifar.

Ritstjórn október 25, 2023 07:00