Drykkir sem bæta svefninn

Góður nætursvefn er undirstaða góðrar heilsu. Margir glíma við svefnerfiðleika, eiga erfitt með að sofna og sofa stutt í einu. Margvísleg ráð geta dugað til að bæta gæði svefnsins þar á meðal að drekka ákveðna drykki fyrir svefninn.
Kamillute er einnig þekkt fyrir sömu verkun og raunar þykir gott að drekka heita drykki fyrir svefninn. Það róar taugakerfið. Margir kjósa glas af heitri mjólk, kakó eða jurtate önnur en kamillute.

Auglýsing

Þessir drykkir eiga það hins vegar sameiginlegt að vera fyrst og fremst tæki til að hjálpa fólki að sofna. Súr kirsuber eða tart cherry eins og þau heita á ensku innihalda melantónín og margvísleg andoxunarefni. Safi úr þeim þykir því hollur og glas af honum getur hjálpað fólki að sofna á kvöldin og sofa lengi. Ýmsar rannsóknir benda til að safi úr súrum kirsuberjum hafi þau áhrif að fólk nái dýpri svefni, nái REM-stiginu, og þar með betri hvíld.

Góðir drykkir fyrir svefninn og verkun þeirra

Safi úr súrum kirsuberjum inniheldur melantónín en framleiðsla þess minnkar í heilanum með árunum. Melantónín hjálpar fólki að slaka á, sofna og ná djúpsvefni.

Heit mjólk inniheldur tryptófan en melantónín er afleiða þess efnis. Það er notalegt að drekka glas af heitri mjólk á kvöldin, því fylgir góð slökun og í mjólkinni eru einnig margvísleg næringarefni.

Kamillute inniheldur efnið apigenin en það efni hefur góð áhrif á taugakerfið. Með aðstoð þess er hægt að ná ró og slökun. Sumum finnst líka ilmurinn af kamillujurtinni sefandi.

Helgibasilíka er skyld basilíku en önnur jurt engu að síður. Hún hefur sterkara og piparkenndara bragð en venjulegri basilíku. Te af helgibasilíku vinnur gegn streituhormóninu kortisól í líkamanum og getur því hjálpað til bæði við svefn og almenna slökun.

Ástríðuávöxtur inniheldur efni sem ýta undir framleiðslu taugaboðaefna í heilanum sem hafa róandi og slakandi áhrif. Það að drekka safa sem inniheldur ástríðuávöxt getur því hjálpað fólki að ná að sofna á kvöldin.

Flest bendir þó til að þótt heitir drykkir og ákveðnar jurtir geti hjálpað fólki að sofna viðhalda þær ekki svefni né ýta undir að manneskjan nái djúpsvefni að undanskildum súru kirsuberjunum. Flestar rannsóknir benda til að safi úr þeim hafi lengri áhrif á taugakerfið en almennt gengur og gerist með aðrar sefandi jurtir. 

Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna skrifar.