Ragnheiður Hermannsdóttir eldaði í vikunni frábæra súpu handa bókaklúbbnum sem hún er í. Með henni hafði hún ristað rúgbrauð, sýrðan rjóma og eplablöndu. Þetta rann ljúflega niður og punkturinn yfir i-ið var svo hrákaka með jarðaberjum og rjóma. Lifðu núna herjaði út úr henni uppskriftirnar að þessu góðgæti. Þess má geta að í klúbbnum var bókin Elín ýmislegt eftir Kristínu Eiríksdóttur til umræðu. Niðurstaða klúbbsins var að bókin væri einstaklega vel skrifuð og athyglisverð. En hér koma uppskriftirnar.
Súpa
- 1 grasker
- 1 laukur
- 1 sæt kartafla
- 2 stórar gulrætur
- 4 lauf hvítlaukur
- 1 stór tsk rifinn engifer
- 1 chilí, skorið þvert og steinhreinsað
- 1 msk olífuolía
- 1 msk sítrónusafi
- ½ tsk cumen
- ¾ dós kókosmjólk
- malaður pipar
- vatn
Grasker, sæt kartafla, gullrætur og laukur skorið gróft niður og sett í pott. Olífuolía og vatn hellt yfir, vatnið þeki u.þ.b. 2/3 af grænmetinu, frekar minna en meira. Ef súpan verður of þykk er hægt að bæta vatni í hana síðar.
Leggið chilí ofan á grænmetið í pottinum ásamt engifer, cumen og sítrónusafa. Setjið lokið á og sjóðið við háan hita í 15 -18 mínútur.
Takið chilíið í burtu og maukið grænmetið með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Smakkið til með sítrónusafa, salti og pipar. Bragðbætt með túrmerik og cumen.
Ábót í súpu
- Sýrður rjómi
- Handfylli graskersfræ
- 1 tsk smjör
- ½ tsk salt
- 1 epli
- 2 tsk sítrónusafi
- ½ tesk hunang
Ristið graskersfræin á pönnu með smjörinu. Þegar fræin byrja að poppa takið þau af hitanum og stráið salti yfir.
Skerið eplin niður í smá teninga og blandið sítrónusafa og hunangi saman við.
Berið eplin, sýrða rjómann og graskersfræin fram með súpunni.
Gott að bera fram gróft brauð með súpunni eða ristað rúgbrauð.
Ristað rúgbrauð
Skerið rúbrauð í þunnar sneiðar, penslið með olíu og leggið á bökunarplötu. Ristið í ofni við 160°C ca 20-25 mínútur. Getur verið gott að strá salti yfir brauðið.
Hrákaka
Botn
- 100 gr kókosmjöl
- 100 gr möndlur (með hýðinu á)
- 250 gr döðlur
- 2-3 msk kakó
- Örlítið vatn
Malið möndlurnar í matvinnsluvél, gætið þess að mala ekki of mikið þá verða þær að smjöri. Bætið öll öðru út í þar til deigið er oðið vel þykkur massi. Bætið vatni við eftir þörfum í ferlinu.
Setjið smjörpappír í mót og pjappið deiginu niður í mótið.
Krem
- 1 ½ dl kókosolía
- 1 ½ dl hrein kakó
- ¾ dl Agavesíróp
- salt
Bræðið kokosolíunna í heitu vatni. Hellið í skál og bætið öllu öðru út í og hrærið vel saman þar til kermið er oðið silkimjúkt og glansandi. Hellið kreminu yfir kökuna í forminu og setjið í frysti í 15-20 mínútur. Takið kökuna út og skerið í bita.
Gott er að bera fram með kökunni jarðarber og rjóma.